
|
 |
laugardagur 17. maí 2008
| 11:21 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Börn á börn ofan
Eftirfarandi vinir og kunningar eru foreldrar:
Þorvaldur+Dísa= Rúnar Karl Þorvaldsson.
Jón Þór+ Emelía= Sunneva Lísa Jónsdóttir.
Valgerður (systir Þorvaldar)+Ragnar (þvílík tilviljun...)= Ónefndur.
Ragnar + Elín= ... Nei djók!
hver er næstur? Árni B + Rally-Sally eiga von á barni í júní. Fleiri sem ætla vera á undan mér?
Update:
Jakob+Sara = Hanna (biðst afsökunar á því að hafa gleymt minni eigin fjölskyldu)
Góðar stundir
4 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Sigfús. |
mánudagur 26. maí 2008
| 05:13 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Ég hugsa, þess vegna er ég
 |
 |
Hvem er du i Mummidalen? | Mitt resultat: Mummipappa Du er Mummipappa! Du er en drømmer og du drømmer deg ofte bort og inn i eventyr. Du er også en håpløs romantikker. |
| Ta denne quizen på Start.no |
Svo fór það í taugarnar á ónefndum að ég hafi ekki minnst á Halla+Lydíu=Maron Haddi. Mér fannst hann bara svo gamall (að verða eins árs kallinn) að mér fannst hann ekki nýr lengur.
góðar stundir
ps: Heyrst hefur að ónefndur auðmaður ætli að festa kaup á "á morgun" þannig að enginn annar geti sagst ætla gera eitthvað "á morgun". Með þessu uppátæki hyggst viðkomandi tryggja sér ákveðið forskot á keppinauta sína í viðskiptum. Þetta hefur einnig í för með sér ýmis vandræði fyrir hinn almenna borgara eins og gefur að skilja. Nemendur fagna þó, því þetta kemur í veg fyrir að kennarar leggi fyrir próf með eins dags fyrirvara.
3 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Dóri. |
föstudagur 30. maí 2008
| 20:10 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Á Akranesi
Er víst eitthvað fár þessa dagana, ég vitna því í Jónas frá Hriflu: "Ég hef einfaldan mælikvarða á gæði manneskjunnar; ef hún ber tilhlýðilega virðingu fyrir sauðkindinni, er með sæmilegt brageyra og getur etið súran pung án þess að kúgast - þá má hún fyrir mér vera röndótt á lit. Og þess vegna dönsk."
svo er síðasta prófið mitt á morgun. Húrra fyrir því!
góðar stundir
ps: Ég þarf ekki að færa fréttir af ráðskjálftanum nóg er um slíkt tal á Íslandi býst ég við, mér finnst hinsvegar leitt að hafa misst af öllu aksjóninu... Hrundi ofan í grunninn hjá þér Pabbi?
2 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Garðar. |
|