
|
 |
föstudagur 4. apríl 2008
| 20:36 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Fleiri myndir af Hönnu
Fyrir þá sem vilja. Sendið mér línu ef svo vill til. Það er rosalega mikið að gera og ég veit ekki hvort það verði mikið um blogg... kannski eitt og eitt.
Nýr fyrirlesari, tveir reyndar. Einn Bill og einn Nisse. Nisse er kúreki, með klút um hálsinn og í vesti, Bill er lítill og kubbslegur og segir skemmtilega brandara. Kúrsinn? Mathematical statistics and signal processing. Tyggið svolítið og reynið að kyngja því. Ef það gengur ekki þá má skyrpa út úr sér og segja: "oj, þetta var súrt".
Góðar stundir
ps: fékk sumarvinnu hjá Landmælingum Íslands, rokk og ról!
1 manns fyllerí, síðasti drykkjubolti er sandra. |
þriðjudagur 15. apríl 2008
| 19:36 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Hengilmæna! Brókarlalli!!!
Ég skal segja þér það... hver þremillinn... jaaaa hééérna hér... Full mikið að gera þessa vikuna og ég hef ekki tíma til neins. Ég hugga mig við það að hér sé allavega komið vor, eitthvað annað en á Íslandi skilst mér.
Á Íslandi eru um það bil 700 bílar á hverja 1000 íbúa. Hana nú!
Mælt er með útvarpsþættinum Krossgötur, tilvalið að sitja í sporvagni, nú eða strætó, og hlusta. Einn þáttur er svona um það bil ferð fram og tilbaka í skólann- að því gefnu að það taki um 25 mín hvora leið. Hægt að nálgast inná ruv.is
Góðar stundir
2 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Halli.. |
laugardagur 26. apríl 2008
| 18:27 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Fyrirmynd allra
Ekki ég, því ég gleymdi að skrá mig í verklegt um daginn. Ekki örvæntaði ég lengi, því ég sá að leiðbeinandinn var mér kunnur. Sendi í skjótheitum einn póst: hviss búmm bang, kýldi löggu, því var bjargað um hæl og ég skráður.
Annað verklegt var um daginn. Þar var leiðbeinandi sem mér líkar við. Sá er með 70% kvarða innbyggðan í augað sem og hæfileikann til þess að skrifa 80% af fullri viðverumerkingu. Þannig var það nefninlega að ég og félagi minn, hann Mattias, vorum að mæla eitthvað rafmagn. Við spurðum hvernig væri best að stilla in svokallað "rms" gildi sínus-sveiflu á sveiflusjána sem við vorum að vinna með (það er svona ca. 70% af heildarsveiflunni). Því var snarlega kippt í lag með aðstoð, að því er virðist, innbyggðs augnkvarða. Þar að auki höfðum unnið verkefni á tölvu sem var ca. 80% búið, hann sá sér ekki fært að kíkja á það og merkti þessvegna bara "skilað" með 80% undirskrift. Hann sýndi okkur svo muninn á 80% og 100% undirskrift.

Okkur fór að gruna að svona tæki fengi maður efhent þegar maður skráir sig í doktorsnám. Hæfileiki til þess að kvarða hluti 70% með auganu og skrifa viðverumerkingar mældar í almennum brotum. Ekki ónýtt það.
Svo bar svo við í gær, að Elín komst að því hversu illa hún í raun heyrir. Við heimsóttum nefninlega hann Bo Håkanson, prófessor sem kennir mér í electronics. Hann hefur unnið við þróun beinleiðni heyrnartækja síðastliðin 30 ár og Elín fékk á föstudaginn tækifæri til þess að prófa slíkt.

á stærð við hálfan eldspýtustokk
Ekki vildi betur til en að Elín tók andköf og hún segir ef till vill betur frá reynslunni á sínu eigin bloggi. Þeir sem eru áhugasamir um tæknina geta kíkt inná www.cochlear.se (á sænsku) og litið í kringum sig.
Enginn bjór |
mánudagur 28. apríl 2008
miðvikudagur 30. apríl 2008
|