
|
 |
þriðjudagur 4. mars 2008
| 20:10 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Próf... Aftur?
Finnst eins og ég sé alltaf í prófum? Það hlýtur samt að benda til þess að tíminn heldur áfram að líða (7 9 13) og þeir sem eru ruglaðir í ríminu, svona almennt, geta þó huggað sig við það. Nú jæja, að ruglast í ríminu er ekki það sem Bubbi gerir (...og það er gott að elska... ég þarf að bremsa?), heldur er Rím ævagamalt tæki til þess að halda reikna út tíma. Ekki er ljóst hvernig á að nota slíkt því bæklingurinn, sem skrifaður var á skinn, var notaður í skó hér í den. Það var auðvellt að ruglast í ríminu. Þá fékk maður vitlausa dagsetningu, jafnvel mánuð en ég vona að fólk hafi ekki oft ruglast á ártölum (sbr. Þegar fæðing hr. Jesú Jósepsonar var áætluð 11 árum of seint... en það ætti að þýða að ég er fæddur 1971 og nú er árið 1997).
Eeee... Afi átti afmæli á laugardaginn og varð 80. Amma henner Ellu átti afmæli á Sunnudaginn og varð 70. Gróa á leiti segir einnig að Jón Þór vinur minn hafi orðið faðir stúlku þann 18 febrúar. Fleira er ekki í fréttum að sinni, verið þið sæl.
Hér kemur svo mynd af deginum hjá mér...

Góðar stundir
1 manns fyllerí, síðasti drykkjubolti er Garðar. |
föstudagur 21. mars 2008
| 11:15 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Langur dagur í dag
Enda föstudagur. Þegar ég bjó á Íslandi, hafði amma oft hönd í bagga og kom í veg fyrir að nokkur skapaður hlutur væri framkvæmdur á þessum degi. Þótti mér það asnalegt, því ég var einmitt í fríi þennan dag, þurfti að gera eitthvað við bílinn minn og þurfti til þess bílskúrinn hjá afa. Ekkert var gert þann daginn...
Svo prjónaði ég þessa húfu um daginn..
Í dag fór ég í göngutúr, rakti spor einhvers dýrs (héri held ég...það var með tá en ekki klauf), eldaði súpu og svo ætla ég kannski að baka brauð líka.
góðar stundir
1 manns fyllerí, síðasti drykkjubolti er Ingibjörg. |
|