
|
 |
fimmtudagur 8. nóv. 2007
| 19:03 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Genginn er í garð tími rigninga, jólaglöggs og piparkakna
Allt ætlar um koll að keyra í verslunum hér í svíþjóð. Fólk slæst um piparkökuboxin og reynir að drekkja hvort öðru í glöggi og meððí. Sit sjálfur og sötra glögg.
Er fluttur og kominn með net, sem er vel. Á morgun fyllist íbúðin mín af fólki og það verður gaman. Það sem er líka gaman er að ég kom öllu draslinu mínu (og Ellu) fyrir á nýja staðnum og ég þurfti ekki að henda miklu. Bara því sem ég átti að losa mig við fyrir löngu hvort sem var.
Góðar stundir.
1 manns fyllerí, síðasti drykkjubolti er Tengdamamma og Helga. |
sunnudagur 11. nóv. 2007
| 13:46 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Gestir komu, gestir fóru
Já, heljarinnar fjör. Andri og Þorvaldur misstu andlitið þegar Svava birtist, enda vissu þeir ekki að hún ætlaði að koma líka. Great success!
Fóru rétt í þessu og vil ég þakka þeim fyrir komuna og óska þeim alls hins besta á leið sinni til Kóngsinns Kjötbein.
Góðar stundir
2 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Raggi. |
sunnudagur 18. nóv. 2007
| 14:35 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Í árdaga mannkyns
Gerðist sennilega margt merkilegt, fólk lærði að nýta sér eldinn og hjól formið. Sem er vel, því annars værum við sennilega í vanda stödd.
Nú! Hvað um það, svo fór sem fór og hér stöndum við í nútímanum og ég er í þann mund að fara vinna heimaverkefni um það, hvað gerist þegar bóndi nokkur reisir sér vindmyllu(r) og tengir við rafurmagnsdreifinet kaupstaðarinns handan hornsinns... Spennandi spennandi!

Hvað á bóndi að reisa margar myllur til að sjá sér og sínum fyrir nægu rafurmagni, og hver eru áhrifin á kaupstaðinn. Fylgist með í næstu færslum!
Já og svo náði ég báðum prófunum mínum þarna um daginn, mikið var það ánægjulegt!
Góðar stundir
ps: Við viljum snjó um jólin!
4 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Halli. |
þriðjudagur 27. nóv. 2007
|