
|
 |
þriðjudagur 2. okt. 2007
laugardagur 13. okt. 2007
| 10:09 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Spider pig... spider pig...
Ég er farinn að klifra oftar en ég hef gert. Þrjú skipti á síðustu 2 vikum. Harðsperrur gera vart við sig á undarlegum stöðum og ég get ekki annað en dáðst að hugrekki manna sem klifra og klungrast uppum veggi, halda sér ekki í neitt, virðast slökkva á þyngdaraflinu með einbeitingunni einni saman. Svo í smá einbeitingarleysi þá fatta þeir það... þeir eru ekki óháðir þyngdaraflinu, þeir lúta sömu lögmálum og við hin og falla. Jafnaharðan eru þeir komnir á fætur og uppí vegg. Þetta er hin besta skemtun.
 
Það virðist sem allir klifri. Mótórhjólatöffari með 5 ára son með sér, konan hanns stóð hjá með 2 ára strák- fjölskyldusport. Margir ungir menn med "dredda" stukku milli veggja alls ókunnugir hugmyndum um þyngdarafl, virðulegir menn með vel snyrt skegg dönsuðu upp á ósýnilegum fótstigum, ungar konur með stinna upphandleggi og mjaðmahnykki sem mola grjót, og svo ég.
Ég barðist við þyngdaraflið og mátti mín lítils. Sté fáein dansspor sem ekki hefðu heillað ógæfumann, hvað þá að ég hafi komist lönd né strönd upp einhverja veggi. Ég fer aftur á þriðjudaginn þegar þessar harðsperrur hafa fjarað út.
Góðar stundir
3 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Ellaskrella. |
miðvikudagur 31. okt. 2007
| 19:30 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Whoaa Nelly!
Ég er að fara flytja. Tyghusvägen 6 303 41505 Gautaborg er heimilisfangið og fyrstu gestirnir eru bókaðir. Andri, Þorvaldur og Jón Þór ætla að kíkja á mig um aðra helgi. Sjibbíkóla!
Svo er ég með projekt í gangi, er að athuga með vefhýsingu á vélinni minni. Ég er samt ekki viss hvað gerist þegar ég slekk á tölvunni... Er síðan enn aðgengileg eða þarf að vera kveikt á henni... þessari spurningu verður svarað vona bráðar býst ég við. Kíkið á linkinn hér til hliðar, undir Heilavirkni og sjáið hvað gerist. Síðan verður á ensku, þar sem ég er farinn að sanka að mér vinum frá öllum heimshornum- þó aðallega svíar sem kvarta yfir því að skilja ekki íslenskuna...
Ég er búinn að kenna nokkrum að telja uppá fimm (þeim finnst einn alveg hillarious orð, það er þetta nefhljóð í lokin sem þeir eru alveg að tapa sér yfir...) og segja Helvítis. Næsta orð á dagskrá: Kaffi.
Góðar stundir
2 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Raggi. |
|