
|
 |
miðvikudagur 5. sept. 2007
| 06:51 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Fékk í afmælisgjöf
Klifurskó og krítarpoka/krít frá Pabba+fjölsk. Afa og Ömmu
Handgerðan kaffibolla, hnífsblað+tvo spítukubba fyrir hald, innlegg úr þæfðri ull með Birki börk sem kjarna frá Mömmu, Jakobi+Söru, Óskari.

myndin er sviðsett og hefur ekkert með færsluna að gera.
Kaktus frá systur mömmu
tvær vínflöskur frá systurdóttur mömmu
Púlsklukku frá Ellu
einn bjór frá Jóa í vélaverkfræði
Jameson flösku frá Krissa (hann var að flytja heim og þurfti að losa sig við þetta dót...)
Að ógleymdu, ógleymanlegu ferðalagi frá tengdó og fjölskyldu.
Góðar stundir
ps: fór í heimsókn til Jakobs í Fågelsjö og keypti mér meðal annars brýni úr sandsteini, svo ég gæti brýnt eldhúshnífana, svo ég gæti skorið mig á þeim... sem ég og gerði. Er með massífar umbúðir á þumli vinstri handar.
2 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Halli. |
fimmtudagur 6. sept. 2007
| 15:32 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Púls
Ég átti afmæli um daginn og fékk af því tilefni púlsmæli. Datt svo í hug að gera smá tilraun á sjálfum mér.
Ég svaf með mælinn og þetta eru niðurstöðurnar fyrir 9 tíma svefn:
púls_max= 127 slög/min
púls_meðal= 55 slög/min
Þetta finnst mér merkilegt. Þetta þýðir að hluta af nóttunni, sennilega í djúpsvefni, er púlsinn minn töluvert fyrir neðan 55 slög á mínútu. Ég giska á að 40+ slög sé nálægt neðri mörkum og það finnst mér magnað.
Góðar stundir
2 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Halli. |
fimmtudagur 13. sept. 2007
| 22:12 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Ekki bara fréttir- heldur líka smáauglýsingar!
Frétt á ruv.is lýkur á þessu
Ljós grábröndóttur stálpaður kettlingur, læða fannst ein og yfirgefin í Skrúði í Dýrafirði í dag. Ekki fullvaxin. Greinilega vön fólki. Það hlýtur einhver að sakna kisu. Ekki er vitað hvernig læðan komst í Skrúð ,- hún á ekki heima í sveitinni. Kannski skildi einhver hana eftir , Eigandi má hringja í síma 456 8227 eða í síma 456 8395 .
Skora ég á ruv að hafa ætíð stutta auglýsingu á eftir skemmtilegum fréttum héðan af...
Fréttina í heild sinni má nálgast hér, SMELLA SVO!
Ef viðkomandi kattareigandi veit ekki hvernig best sé að finna týnda kötinn, má benda á haldgóðar upplýsingar á á þessari síðu. Hafið það nú sem allra best um helgina.
Góðar stundir
Enginn bjór |
sunnudagur 23. sept. 2007
| 15:48 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Kaffi
Svíþjóð eru norðurlandameistarar kaffibarþjóna í fyrsta skipti. Fylgdumst stuttlega með og hittum vini og kunningja. Svo var uppboð. Kaffi og kaffivörur, bolir, svuntur, handklæði, te o.fl. Allur ágóði var til styrktar skólastarfi í Nicaragua, við styrktum. Buðum í tösku sem innhélt: Kaffibaunir ca 4 kg, Tekönnu frá Eva Solo, 2x "kaffi" handklæði, 2x svuntur, mjólkurflóunarkönnu og 4 samanbrjótanlegri ferðabollar fyrir 350 skr.- very nice!
Svo var tengdó í heimsókn, mikil buisness ferð í DK og SE, stoppaði við í Gauta yfir helgina, það var gaman, góður matur, gott öl og gott kaffi. Mjög gott allt saman.
Góðar stundir
3 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er elín. |
|