Ble!
Hann heitir Maron Haddi Haraldsson. Með tveimur S-um, einhver mistök áttu sér stað við skráningu nafnsinns og í þjóðskrá er hann bara með einu S-i. Maron í höfuð á móðurafa og Haddi (Halldór) í höfuð á föðurafa.
Maron birtist fyrst í rituðum heimildum í Ódyseifs kviðu Hómers, og var sá prestur. Nafnið er einnig þekkt úr þýsku og merkir þá "hinn gráhvíti". Einnig er kaþólskur dýrðlingur að nafni Maron og til er Marónítaregla munka er heita á hann. Um þetta má lesa á Wikipedia.

Til gamans má geta að ég skráði mig úr þjóðkirkjunni í dag og við Elín erum búin að vera saman í 4 ár núna. Við erum að fara borða á Þremur frökkum hjá Úlfari í kvöld- namminamminamm!
Góðar stundir
ps:Tónleikar með Dikta og Múgsefjun um verslunarmannahelgina á Gauknum, innipúkinn er í uppnámi og verður sennilega ekki...demit.
1 manns fyllerí, síðasti drykkjubolti er Lydía Ósk. |