
|
 |
þriðjudagur 15. maí 2007
| 18:10 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Hmm... já
Það hefur eitthvað farist á mis að skrifa eitthvað hérna í svolítinn tíma. Ég er einmitt búinn að vera gíra mig uppí prófalærdóm undanfarið. Elín hverfur til Íslands á fimmtudaginn, þannig að karl verður einn í koti í 2 vikur. Erum búin að ráðstafa íbúðinni í sumar þannig að það léttist aðeins á okkur sumarbyrðin.
Það voru kosningar hérna um daginn var það ekki? Stefnir þetta eitthvað? Mun minnihlutinn verða við stjórnvölinn næstu 4 ár?
Góðar stundir
Enginn bjór |
fimmtudagur 17. maí 2007
| 22:11 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Guðni minn, talaðu nú af tilhlýðilegri virðingu um flokkinn sem er orðinn stærri en þið!
..::Steini J við áður nefndan Guðna::..
Jébb jébb.. mikið fjör í kastljósinu í kvöld. Samfylking og sjálfstæðið í stjórn? Mig grunnti þetta... er pínu stress yfir kjörtímabilinu samt sem áður. Ég kýs þá bara eitthvað annað næst.

enga vinstri beygjur hér góði...
Ég er veikur á uppstigningadegi, skammarlegt, það eru sjálfsögð mannréttindi að vera frískur á almennum frídegi. Þá eiga allir sjúklingar að fá frí frá sínum veikindum. Kvef, hálsbólga, hiti, ég vona að ég verði skárri á morgun svo ég geti byrjað að læra fyrir próf.
Góðar stundir
1 manns fyllerí, síðasti drykkjubolti er sandra. |
laugardagur 26. maí 2007
| 11:33 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Af ýmsu
Merkilegt og allt að því spennandi að ungur, spengilegur karlmaður sé heilbrigðisráðherra. Það er venjan að það séu einhver óaðlaðandi gamall kall sbr. Björn Bjarnason, Jón Kristjánsson, Sighvatur Björgvinsson o.fl. eða konur sbr. Siv Friðleifs.
Ekki halda að ég hafi eitthvað á móti gömlum köllum eða konum, þvert á móti. Afi minn er fínn kall og kærastan mín er kona- hún er yndisleg. Það er bara óvenjulegt að sjá ungan og hressan einstakling med xy-litninga. Kannski gerist eitthvað spennandi.
Ég er í prófum enn einu sinni. Tvö á dagskrá, eitt á miðvikudag og eitt á laugardag eftir viku. Eftir það styttist í heimferð. Það er staðfest að strákurinn verður staddur á (í?) Ítalíu í ágúst og flýgur svo beint til Sverige. Ekkert Reykjarvíkur maraþon fyrir mig. Ekkert afmæliskaffi með fjölskyldunum, ekkert gaman! Júúú... það er gott að vera í Svíþjóð og hér býr gott fólk. Ég hlakka samt til að koma heim.
Mamma mín hugsar sér til flutnings... meira um það síðar ef eitthvað verður.
Góðar stundir
4 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Garðar. |
|