
|
 |
mánudagur 9. apríl 2007
| 12:15 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Er að fara til Köben á miðvikudaginn og Amsterdam á Fimtudaginn
Verð því utan þjónustusvæðis í nokkra daga, kem aftur á mánudaginn eftir viku. Ætlum að gista á Hans Bruckner hostel sem ku vera hressandi. Anywho... það snjóaði hér í gær og ég fékk merkilegt símtal. Segi frá því seinna. Nágranninn er að tóna, tóna hátt og mikið, eflaust að æfa söng eða slíkt.
Góðar stundir
1 manns fyllerí, síðasti drykkjubolti er Garðar. |
laugardagur 21. apríl 2007
| 21:41 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Fór til Köben svo til Amsterdam, það var gaman. Ferðasögu er að finna hjá Elínu á mayamus.g.is
Jæja já... ég keypti mér hjól á 400 skr.- það er hjá honum Kobba bróður en hann ætlar að senda mér það með rútu. Er kominn með vinnu í sumar, sem er vel. Verð starfsmaður hjá Schmidt och Norland í Borgartúni. Sennilegast bara maur býst ég við.
Samtalið sem fólk býður í ofvæni eftir að ég skýri betur var á þessa leið, svona sirkabát.
Ragnar: Halló
maður: Hæ, þú ert að verða föðurbróðir.
Ragnar: Eeee...Eeeee.... já....Eeeee... og eeee... já... jahérnahér!!!
(meira eeee... já... og humm... og eeee kom í kjölfarið)
Þannig er það. Ragnar er að verða föðurbróðir.
Góðar stundir.
4 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Garðar. |
mánudagur 23. apríl 2007
| 20:59 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Nýtt í spilaranum
Peter Tosh, Peter Björn and John, Keiko Matsui, Madeleine Peyroux, Holly Cole, Alex Gopher, Claude Challe, The Roots, Grover Washington Jr. og Herbie Hancock.
Og það er meira á leiðinni... Chet Baker og Cult of Luna meðal annars.
Hér er fólk byrjað að hita upp fyrir komandi kosningar, stór dagur þann 12 maí. Hér verður árlegt Gautaborgar hlaup(hálfmaraþon), Evróvisjón; sem er svolítil þjóðhátíð hér í Svíþjóð og svo kosningavaka um kvöldið. Ekki ónýtt það. Elín er væntanleg heim þann 17 maí og ég þann 4 Júní. Er líka kominn með sumarvinnu, í þetta sinn ekki hjá vinnuskólanum í Garðabæ heldur í raflagnadeild Smith&Norland, það á að kjöldraga strákinn sem ekki er orðinn þurr á bak við eyrun í þessum geira.
Góðar stundir
Enginn bjór |
|