
|
 |
miðvikudagur 7. mars 2007
| 14:52 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
In space, nobody can hear you scream...
Jájá börnin góð, það er bara einföld eðlisfræði. Þar sem hljóð er titringur í loft og í geiminum er ekkert loft(þ.e ekkert sem titrar) þá heryrir maður barasta ekki ra**gat ef einhver kallar á mann. Þannig að næst þegar þið farið út í geim, það er nú að verða daglegt brauð að skella sér í geimferð, þá skulið þið ekki verða ykkur til minnkunnar og vera kalla eitthvað hægri vinstri. Það heyrist ekkert í ykkur!
Heimur kvikmyndanna er laus úr viðjum eðlisfræðilögmála og heldur sig nær eingöngu við markaðslögmálin. Hvernig eðlisfræðin hagar sér í kvikmyndum er merkilegt fyrirbæri og slær við pælingum Erlings J. Brynjólfssonar doktorsnema í eðlisfræði um tilurð alheimsinns (strengjafræði er ekkert grín).
Hur som helst! Ég er að fara í próf í næstu viku, þriðjudag og föstudag. Leggst vel í mig, hinsvegar leggst ekki vel í mig öll rigningin hér í borg Gauta, þetta fer að verða gott bara, er það ekki haaa!!

Hef verið að svipast um eftir sumarvinnu og ef þið, lesendur góðir, lumið á einhverju spennandi fyrir rafmagnsverkfræðinema að vinna við, endilega rafmagnstengdu, þá hafið samband og ég sendi ferilskrá um hæl. Póstfangið mitt er sem fyrr, sigurjon(at)student(dot)chalmers(dot)se
G(o)da(r) stu(ndir)
1 manns fyllerí, síðasti drykkjubolti er Halli. |
laugardagur 17. mars 2007
| 22:15 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Amsterdam or bust...
Já, við Elín ætlum að skella okkur á heimsborgaflakk. Amsterdam, here we come! 12-16 apríl gerum við Amstedam að örlítið skemmtilegri borg, látum ljós okkar skína og skemmtum okkur og öðrum borgarbúum með ótrúlegum uppátækjum. Jibbíkóla.
Svo kláraði ég líka prófin í dag, Húrra fyrir mér! Húrra húrra húrra húrra! Fórum út að borða indverskt í tilefni dagsinns og á morgun ætlum við að baka köku. Öllum boðið sem nenna út á eyjuna á annað borð!
Mig langar að fara klifra

eeehmm... og nú er ég farinn í háttinn.
Góðar stundir
6 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er krissan. |
miðvikudagur 21. mars 2007
| 19:34 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Gulagið i Reykjavik
HR er með fimm ára plan. Það er einhver skódalykt af þessu öllu saman.
Frétt á ruv.is
HR: Námsframboð aukið, nemum fjölgað
Stefnt er að því að nemendum við Háskólann á Akureyri fjölgi um 500 á næstu fimm árum. Námsframboð verður aukið m.a. verður boðið upp á nám í verkfræði. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra segir þetta raunhæf markmið.
Nemendur Háskólans á Akureyri eru í dag 1.500 í kennaradeild, félags- og lagadeild, heilbrigðisdeild og vísinda- og raunvísindadeild. Á fundi síðdegis var stefna háskólaráðs HR til næstu fimm ára kynnt starfsfólki.
Góðar stundir
3 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Óli. |
föstudagur 30. mars 2007
| 15:58 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Hvernig fór kosningin um álverið 2007?
Gettu! Þetta verður kannski ein spurning í gettu betur árið 2018 þegar næsta kynslóð sem býr við stækkað eða ekkert álver (Hvort er verra?) keppir í Gettu Betur! Jæja, það eru úrslit í kvöld og ekki seinna vænna en að byrja poppa og opna gosflöskurnar. Þið megið byrja naga húsgögn ef spennan er alveg að fara með ykkur, en ekki fyrir 18:00!
Við Elín ætlum að sitja með sætisólar spenntar þegar útsendingin fer í loftið á öldum internetsinns. Við verðum líka með sætisólar spenntar þegar við förum til Amsterdam 12 apríl... helvítis flandur á manni alltaf hreint. Jeje, ég er í semipáskafríi þar sem ég fer í endurtökupróf þann 11 apríl, en eftir það, þá jevlar!
Góðar stundir
3 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Lydía Ósk. |
laugardagur 31. mars 2007
|