
|
 |
fimmtudagur 4. jan. 2007
| 15:11 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Gleðilegt nýtt ár!
Vil byrja á að óska öllum lesendum gleðilegs nýs árs og farsældar á komandi ári, takk fyrir þau gömlu og megi minningarnar verða æ fleiri í ár.
Þar sem eflaust allir hafa borðað sér til óbóta á milli jóla og nýárs þá er ekki úr vegi að benda á hugsanlegar afleiðingar þess að vera "nokkuð breiðvaxin". Sjá nánar frétt á ruv.is
Góðar stundir
Enginn bjór |
þriðjudagur 9. jan. 2007
| 17:09 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Er í Svíþjóð, einn... án elskunnar minnar
Kvíðið engu, við erum enn saman. Hún kemur á morgun og þangað til ætla ég að vera duglegur að læra.
Þakka guði fyrir að þurfa ekki að fara á stefnumót. Hér er dæmi um svokallað speed-date eða stefnumót með hraði

yikes... maður verður að passa sig.
góðar stundir
Enginn bjór |
laugardagur 13. jan. 2007
| 15:47 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Kominn tími til!
Er að fara í próf á mánudaginn og miðvikudaginn þannig að það er mikill lærdómur þessa stundina... en maður gefur sér smá tíma í svona lagað líka. Ég er kominn niður í einn bolla af kaffi á dag, og þá um 4 leitið ekki um morguninn.
Við Elín erum í fríi stóran hluta af næstu viku, kannski maður leggi land undir fót? Gera eitthvað flippað, heimsækja höfuðstaðinn, jafnvel fara til "útlanda". Meira um það seinna. Við erum svo að fara til Åre í lok janúar, á snjóbretti. Elín að fara læra renna sér, ég að fara skvera mér út um allt fjall- get varla beðið!
Nýtt áhugamál, öllu heldur, ný útfærsla á gömlu áhugamáli í uppsiglingu. Það verður allt kynnt með pompi og prakt eftir prófin. (rosalega mikið að gera eftir prófin?)

Góðar stundir
ps: Baráttukveðjur í Holtsbúðina sem hefur sagt skilið við bjór og snakk og velkomnað sódavatn og vínber fyrir framan imbakassann á tyllidögum!
2 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er sandra. |
laugardagur 20. jan. 2007
| 09:49 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
jæjajæja
Við Elín héldum síðbúið nýárspartý hérna í gærkvöldi, mikið gaman, mikið sungið. Í dag SNJÓAR í Gautaborg, öllum börnum til mikillar lukku þá er laugardagur og þau geta farið út og velt sér um í þessum hvítu herlegheitum er úr himni falla án nokkurara sjánlegrar ástæðu, nema einmitt til að veita gleði.
Við erum í fríi í dag og á morgun, eins gott að nota það sem best og gera sem mest. Laga hjól, prjóna (ég er að prjóna húfu), fara í afmæli, elda góðan mat, hitta vini og drekka kaffi...úff mikið að gera.

Áhugamálið nýja segið þið... Já, við Elín opnuðum tónlistarsíðu til þess að knýja okkur til þess að hlusta meira á nýja tónlist. Við ætlum að hlusta á nýja tónlist í hverri viku og skrifa eitthvað um það á öldum ljósvakans. thisismywagon.blogspot.com og þið komist þangað í gegnum gátt hér til vinstri, undir fyrirsögninni heilavirkni. Njótið vel.
Góðar stundir
Enginn bjór |
|