
|
 |
föstudagur 3. nóv. 2006
| 17:03 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
óskast keypt eða gefinns
Heilabú óskast keypt eða gefinns, helst lítið notað, þarf að kunna rafsegulfræði og/eða stærðfræðigreiningu með fleiri en einni breytu.
Vá hvað ég er í skemtilegum kúrs. Og erfiðum! Rafsegulfræði er spennó. Heyrði skemmtilega hnyttið tilsvar frá Söndru hér um daginn.
" Ég nenni ekki að rífast við fólk, ég vil miklu heldur hafa vit fyrir því!"
Svona er það börnin góð... núna er matur
Góðar stundir
4 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Raggi. |
miðvikudagur 8. nóv. 2006
| 21:33 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Be-elze-búb
Ég er í ensku í skólanum, svona... technical communication og í dag vorum við að gera svona "persónuleikapróf". Það var þannig að við lásum inná segulband, smá texta og nokkur "erfið" orð. Svo ætlar kennarinn að hlusta á þetta og segja hverjum og einum að æfa sig að bæta sprokið sitt og láta viðkomandi hafa persónulegar æfingar. Ekki það að ég sé alveg reiprennandi á ensku en ég bara verð að segja frá.
Þannig er mál með vexti að svíar segja mikið jöst (ekki djöst) og sjipp (ekki chip) og svo er einn sem segir bara "fluctations" þegar hann ætlar að lesa "fluctuations". Annað skemmtilegt er: Turbín, í stað: Turbine. Svona má lengi telja. Sumir kunna ekki að nota greini, ákveðinn eða óákveðinn. Fleirtöluorð? Ekki til að tala um. Fólk segir bara peoples og moneys ef því sýnist sem svo.
Ég á stundum ekki til orð. Að þetta fólk skuli vera útskrifað úr framhaldsskóla og allt... djísús!
Góðar stundir.
6 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Skari skripó. |
fimmtudagur 30. nóv. 2006
| 10:29 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Hef ekki bloggað ansi lengi sýnist mér.
Það sem ég hef verið að gera er ekki margt, læra fyrst og fremst, og það er mikið að læra. Jæja, Ég kem heim á þorlák og hef einsett mér að smakka á skötu, vel kærstri. Fer svo aftur utan þann 7 janúar. Hyggst ekki vinna um jól og áramót (í fyrsta skipti síðan... jah.. stórt er spurt) heldur ætla mér að vera í góðu fríi. Eitt endurtektarpróf þann 15 jan, svo viku frí þar til skólinn byrjar aftur.
Núna er herramannsmatur á borðinu að kólna. Kjötbollur, grænmeti, kartöflur, raurófur og baunakássa. Þessu verður skolað niður með vatni.
Góðar stundir.
4 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Lydía Ósk. |
|