Ragnarskviða

Völin
Forsíða
Myndaalbúm
Videohorn

Notandanafn:
Lykilorð:
Gleymmérei:

Heilavirkni
New Scientist
The assayer
Vegur hins illa
Ég á ensku

vinir&vandamenn
Elín Skrelín
Gaddi feiti
Skúli Skelfir
Katrín frænka
101 Sandra
Litla Ósk
Comrad Sergey Popov
Natalie the busy bee
Sixerinn
sigfús frændi
Vignir (og Krissa?)

Það sem mér finnst gaman að skoða
Baggalútur
News for neerds, stuff that matters
Eppli
Æðri menntastofnun
Prjóna meira!
Russell´s teapot
VW rúgbrauð

Fortíðin
1. 8 '05 - 31. 8 '05
1. 9 '05 - 30. 9 '05
1. 10 '05 - 31. 10 '05
1. 11 '05 - 30. 11 '05
1. 12 '05 - 31. 12 '05
1. 1 '06 - 31. 1 '06
1. 2 '06 - 28. 2 '06
1. 3 '06 - 31. 3 '06
1. 4 '06 - 30. 4 '06
1. 5 '06 - 31. 5 '06
1. 6 '06 - 30. 6 '06
1. 7 '06 - 31. 7 '06
1. 8 '06 - 31. 8 '06
1. 9 '06 - 30. 9 '06
1. 10 '06 - 31. 10 '06
1. 11 '06 - 30. 11 '06
1. 12 '06 - 31. 12 '06
1. 1 '07 - 31. 1 '07
1. 2 '07 - 28. 2 '07
1. 3 '07 - 31. 3 '07
1. 4 '07 - 30. 4 '07
1. 5 '07 - 31. 5 '07
1. 6 '07 - 30. 6 '07
1. 7 '07 - 31. 7 '07
1. 8 '07 - 31. 8 '07
1. 9 '07 - 30. 9 '07
1. 10 '07 - 31. 10 '07
1. 11 '07 - 30. 11 '07
1. 12 '07 - 31. 12 '07
1. 1 '08 - 31. 1 '08
1. 2 '08 - 29. 2 '08
1. 3 '08 - 31. 3 '08
1. 4 '08 - 30. 4 '08
1. 5 '08 - 31. 5 '08
1. 6 '08 - 30. 6 '08
1. 7 '08 - 31. 7 '08
1. 8 '08 - 31. 8 '08
1. 9 '08 - 30. 9 '08
1. 10 '08 - 31. 10 '08
1. 11 '08 - 30. 11 '08
1. 12 '08 - 31. 12 '08
1. 1 '09 - 31. 1 '09
1. 2 '09 - 28. 2 '09
1. 3 '09 - 31. 3 '09
1. 4 '09 - 30. 4 '09

border="0"
sunnudagur 10. sept. 2006

22:01 | Sigurjón Ragnar Viðarsson
Jæja mæja

Prófin búin og skólinn byrjaður, mikið að gera. Jakob kominn til bæjarinns og það er gaman. Flytjum um næstu helgi og fórum í IKEA í dag, skoðuðum okkur rúm og sitthvað fleira smálegt. Elín á afmæli eftir viku, ætli hún fái afmælisgjöf frá einhverjum góðhjörtuðum?

Vorum í bíó og sáum Superman Returns ásamt Jakobi og Söru, myndin er skítsæmileg- leigumynd, ekki 1000 króna virði að sjá í bíó. Já 1000 kr, þið heyrðuð rétt. Það kostar 100 kr sænskar í bíó um þessar mundir, ekki veit ég afhverju. Ætla að setja allt download á fullt þar til verðið lækkar, skítabíó.

Þessi frétt er tilnefnd sem ömurlegasta frétt í heimi í dag. Morgunblaðið er að tapa virðingarstigum hægri vinstri, sérstaklega ömurlegur vefurinn þeirra. Allt of mikið af auglýsingum, allt of mikið af lélegu málfari og svo þessi frétt hérna

Góðar stundir

1 manns fyllerí, síðasti drykkjubolti er sandra.
fimmtudagur 14. sept. 2006

16:22 | Sigurjón Ragnar Viðarsson
Flytjum um helgina!

Já og þá verðum við úr sambandi við Internet í nokkra daga. Ætlum að kaupa okkur nýtt rúm og allt! En hvað um það, ég og Ella ætlum að hlaupa út í búð og kaupa Banan á 40kr/kg, það er næstum gefinns!




Enginn bjór
mánudagur 18. sept. 2006

19:09 | Sigurjón Ragnar Viðarsson
nú er komið net

Loks í sambandi við umheiminn. Elín á afmæli í dag, óskum henni innilega til hamingju með árin 20! Ferfallt húrra fyrir henni, húrrahúrrahúrrahúrra!

Annað í fréttum er þetta: Ég skipti yfir í rafmagnsverkfræði í dag...

Góðar stundir

1 manns fyllerí, síðasti drykkjubolti er TPABBI.
laugardagur 23. sept. 2006

11:03 | Sigurjón Ragnar Viðarsson
Í dag er 23 stiga hiti og svalandi haustvindur

Frétti af einhverjum óskaplegum kulda á Íslandi, er það rétt skilið? Ómar Ragnarsson er orðinn opinber andstæðingur náttúruskemmda og Andri Snær Magnason er á Bókamessu í Gautaborg. Allt að gerast!

Gaman í skólanum, rásagreining og eðlisfræði- hálfleiðarar og kristallar. Stefnt er á Carcasonne/Catan spiladag á morgun, spennandi spennandi.

Jæja, farinn á bókamessu

Góðar stundir

2 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Sandra.
laugardagur 30. sept. 2006

17:53 | Sigurjón Ragnar Viðarsson
Ég vil biðja fólk um að votta fallinni þjóð virðingu sína með einnar mínútu þögn

Ég held að ásjóna Íslendinga hafi í dag verið drepin útávið fyrir fullt og allt. Hálslón er að fyllast og í því sekkur sú sjálfsvirðing sem íslendingar áttu.

Það er kannski óréttlátt að bendla þetta við alla Íslendinga, sá meirihluti sem stýrir landi og þjóð eru sökudólgarnir, við skulum vona að næsta ríkisstjórn skrúfi hreinlega frá stíflunni aftur.

Aldrei. Aldrei í íslandssögunni hefur eitthvað jafn heimskulegt verið gert fyrir 100 miljarða króna, 100 miljarðar eru 100 þúsund miljónir. Það eru meiri peningar en Háskóli íslands hefur fengið frá ríkinu síðastliðin 15-20 ár. Pælið í því.

Ef HÍ hefði fengið 100 miljarða til þess að spandera í menntun þjóðarinnar, hefðu þá ekki skapast fleiri og verðmætari störf heldur en fáein skitin ál-potara skítadjobb austur á landi? Ef þið eruð ekki búin að lesa Draumalandið eftir Andra Snæ Magnason, þá legg ég til að þið gerið það fljótlega.

Góðar stundir

ps: Talað er um arðsemi virkjunar ef hún skilar 10% hagnaði á 40 árum... piff segi ég nú bara. þessi 10 prósent er minna en hagnaður bankanna á ársgrundvelli. Skítapésar.

4 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Halli.