
|
 |
sunnudagur 6. ágúst 2006
| 21:12 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Verslunarmannahelgi
Helgin þá Íslendingar fara og detta ærlega í það, slást, rigna niður og fjúka burt, og hafa það almennt ansi skítt. Ég er búinn að hafa það fínt! Fór í óvænta bæjarferð með spúsu minni á föstudag, var óvænt boðið í sumarbústað í gær og planið er að slappa af í kvöld- en kannski gerist eitthvað óvænt. Svona á helgin að vera, óvænt og skemmtileg.
Vonandi varð ykkur ekki meint af (ó)gleði helgarinnar.
Góðar stundir.
1 manns fyllerí, síðasti drykkjubolti er Garðar. |
mánudagur 21. ágúst 2006
| 06:03 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Kominn til Sverige aftur
Hér var rigning þegar við mættum, annað var fínt. Hlakka til að byrja í skólanum.
Góðar stundir
update:
Ég datt á hjólinu, guði sé lof fyrir hjálma. Mér er illt í hné en annars hress. Já... og svo á Wilt Chamberlain afmæli í dag.

Hann afrekaði það einmitt að skora 100 stig í einum og sama körfuboltaleiknum, liðið hans sigraði New York Knickerboxers 169-147 þann 2 mars árið 1962. Leon Trotsky var líka myrtur á þessum degi árið 1940.
góðar stundir
1 manns fyllerí, síðasti drykkjubolti er tinna. |
fimmtudagur 24. ágúst 2006
| 12:06 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Til hamingju, Jakob
Bródir minn, hann Jakob, komst inn í háskóla hér í gautaborg og ég vil óska honum til hamingju med thad.
hér er mynd af hjóli thad er nefnt eftir honum Jakobi uppá enska tungu, Jake the snake

Godar stundir
Enginn bjór |
sunnudagur 27. ágúst 2006
| 18:32 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Drasl...
Ég er veikur. Hvað á það að þýða! ekki veikur síðan ég veit ekki hvenær svo nær maður sér bara í einhvern hita og aumingjaskap í miðju prófatímabili. Eins gott að það gengur vel að læra þannig að ég er svo sem ekkert stressaður.
Fórum í heimsókn til Mömmu í gær og hittum Jakobs kærustu, Söru. Hún var nice. Fékk blóm í afmælisgjöf frá mömmu (svona í krukku, ekki vönd), gamla iPod-in hans Óskars og ársáskrift af utemagasinet frá Kobba kuta. Mikið fjör hjá mér í vetur.
Vonandi verð ég orðinn hress á morgun, ég ætla altént að læra hvað sem á gengur.
Góðar stundir
Enginn bjór |
þriðjudagur 29. ágúst 2006
| 16:03 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
ekki veikur...
Ekki veikur lengur lærði í dag, svo kom yfir mig eirðarleysi síðastliðinna tveggja daga og ég missti einbeitinguna. Þarf að hlaupa eða hjóla eða þvo þvott, talandi um að hlaupa þá fékk ég hlaupaskó í afmælisgjöf frá henni Elínu minni. Puss og kram fyrir það :*
Svo festist sjósendingin okkar í tollinum í Svíþjóð, bölvaðir sósíalistarnir vildu rukka okkur um toll og vask út af einhverjum undarlegum reglum. Ég laug saman einhverju virði (sem átti sér við mjööög óstöðug rök að styðjast) og þeir tolluðu og vöskuðu okkur um 515 skr.- Aular.
Grónagrautur í matinn, brauð í ofninum, namminamminamm! Læt þessa mynd af Boston fylgja í tilefni af því að Garðar og Olga eru farin til náms við Northwestern University, sem er einmitt í Boston.

Góðar stundir
4 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Garðar. |
|