
|
 |
þriðjudagur 2. maí 2006
| 20:31 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
bévað
Mikið er krónan leiðinleg við okkur námsmenn. Núna er ég búinn að borga leigu og rafmagn og helmingurinn af námsláninu farinn... bévað. Já, og svo fór ég til tannlæknis um daginn í fyrsta skipti í 4 og hálft ár. Ókeypis skoðun (frábær skóli sem ég er í!) og í kjölfarið mátti ég koma aftur og láta laga smávegis tannstein. Sem ég og gerði, eftir 10 mínútna setu í stólnum sagði tanni:"æææ... farðu bara heim, þetta var miklu minni en ég hélt, við skulum bara segja þetta gott og þú þarft ekkert að borga". Bingó í buddu hjá mínum. Næsti tannlæknir eftir 4 og hálft ár aftur.
Góðar stundir
6 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er tinna. |
laugardagur 6. maí 2006
mánudagur 8. maí 2006
| 07:31 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
í dag er mánudagur!
Helgin var mjög skemmtileg, grill hjá Krissa og Margréti, bakadi meira braud í gaer. Fór út ad hjóla, laerdi, söng og spiladi á gítar.
Já og Til hamingju med góda vedrid um helgina, Íslendingar. Mér skilst ad sumarid hafi komid snemma og hédan af liggi allt nidur á vid. Hlakka til ad koma heim!
Gódar stundir
1 manns fyllerí, síðasti drykkjubolti er Elín. |
föstudagur 12. maí 2006
sunnudagur 14. maí 2006
| 21:15 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Prófalestur hófst í dag
Til grundvallar liggur Stærðfræðileg tölfræði og gagnarýni... hljómar ekki jafn töff og "mathematical statistics and data analysis" er það? Prófið er á laugardaginn og næst eftir það er á laugardeginum 27. Það ætti að vera aflfræði eða "mechanics". Fólkið í bekknum er almennt á því máli að kennarinn sé þegar búinn að ákveða hverjir ná og hverjir falla... ég hlakka ekki til. Síðast en ekki síst er hagnýt stærðfræði eða "applied mathematics" þann 30 maí. Eftir það er algjört frí í 11 daga þar sem ég ætla mér að vera með tærnar eins hátt upp í loft og ég mögulega get. Svo tekur sumarvinnan við. Get ekki beðið!
góðar stundir
ps: sumarvinnan sú sama og undanfarin 2 ár, flokks- og svæðisstjóri vinnuskólans í garðabæ sem og föstudags og helgarvinna í vínbúðinni á garðatorgi.
1 manns fyllerí, síðasti drykkjubolti er Elín. |
sunnudagur 21. maí 2006
fimmtudagur 25. maí 2006
| 16:36 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Nefndur í dag, Tristan Máni Gylfa og Kristrúnarson
Tristan sem þýðir sorg, er komið úr engilsaxneskum sögnum er segja frá ungum dáðadreng sem verður ástfanginn af Ísold. Ennfremur segir sagan frá því að honum hafi verið gefið þetta nafn þá móðir hanns lést við barnsburð. Tristan og Ísold er ekki ætlað að vera saman og giftast í sínhvora áttina. Tristan veikist og sendir eftir Ísold í þeirri von að hún geti læknað sig. Biður hann um að þegar skipið snúi aftur og Ísold sé um borð, séu seglin hvít, annars svört. Eiginkona Tristans, Iseult lýgur að Tristan að seglin séu svört þegar skipin koma og Tristan deyr úr harmi áður en Ísold nær til hanns. Stuttu seinna deyr Ísold einnig úr harmi. Iseult sá eftir gjörðum sínum þegar henni varð ljóst hversu ástfangin þau voru af hvort öðru.
Látið þetta ykkur að kenningu verða, þið sem platið.
Góðar stundir
4 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er þorvaldur. |
mánudagur 29. maí 2006
| 06:27 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Í dag er sunnudagur
Og það eru 2 dagar í próf. Að þessu prófi loknu þá er ég einu ári nær útskrift, þýðir samt ekki að maður útskrifist á réttum tíma. Eldri nemendur eru duglegir að hamra á því að fyrsta árið sé barnaleikur, annað árið sé erfiðast í heimi og þeir sem klári sig í gegnum það með að minnsta kosti 50% af einingunum séu mjög góðir. Hinir eru líka góðir, en samúðin er öll þeirra. Ég get ekki beðið. Sem dæmi um það þá pantaði ég mér bók sem liggur til grundvallar næsta haust, kíki kannski í hana í sumar á milli þess sem ég læri fyrir endurtektarprófið í ágúst.
Góðar stundir.
2 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Ragnar hinn loðni. |
þriðjudagur 30. maí 2006
| 07:50 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Fleyg orð
Magga Maack er í heimsókn, þetta gerðist í morgun.
Ragnar:" Magga villtu hafragraut?"
Magga:" Nei..."
Ragnar:" En kaffi?"
Magga:" neei...."
Ragnar:" Borðar þú ekki morgunmat?"
Magga:" Nei..."
Ragnar:"Þetta er mikilvægasta máltíð dagsinns!"
Magga:" Ef maður er hommi..."
Magga er að kúra... fer í próf á eftir.
Góðar stundir
Enginn bjór |
miðvikudagur 31. maí 2006
|