Ragnarskviða

Völin
Forsíða
Myndaalbúm
Videohorn

Notandanafn:
Lykilorð:
Gleymmérei:

Heilavirkni
New Scientist
The assayer
Vegur hins illa
Ég á ensku

vinir&vandamenn
Elín Skrelín
Gaddi feiti
Skúli Skelfir
Katrín frænka
101 Sandra
Litla Ósk
Comrad Sergey Popov
Natalie the busy bee
Sixerinn
sigfús frændi
Vignir (og Krissa?)

Það sem mér finnst gaman að skoða
Baggalútur
News for neerds, stuff that matters
Eppli
Æðri menntastofnun
Prjóna meira!
Russell´s teapot
VW rúgbrauð

Fortíðin
1. 8 '05 - 31. 8 '05
1. 9 '05 - 30. 9 '05
1. 10 '05 - 31. 10 '05
1. 11 '05 - 30. 11 '05
1. 12 '05 - 31. 12 '05
1. 1 '06 - 31. 1 '06
1. 2 '06 - 28. 2 '06
1. 3 '06 - 31. 3 '06
1. 4 '06 - 30. 4 '06
1. 5 '06 - 31. 5 '06
1. 6 '06 - 30. 6 '06
1. 7 '06 - 31. 7 '06
1. 8 '06 - 31. 8 '06
1. 9 '06 - 30. 9 '06
1. 10 '06 - 31. 10 '06
1. 11 '06 - 30. 11 '06
1. 12 '06 - 31. 12 '06
1. 1 '07 - 31. 1 '07
1. 2 '07 - 28. 2 '07
1. 3 '07 - 31. 3 '07
1. 4 '07 - 30. 4 '07
1. 5 '07 - 31. 5 '07
1. 6 '07 - 30. 6 '07
1. 7 '07 - 31. 7 '07
1. 8 '07 - 31. 8 '07
1. 9 '07 - 30. 9 '07
1. 10 '07 - 31. 10 '07
1. 11 '07 - 30. 11 '07
1. 12 '07 - 31. 12 '07
1. 1 '08 - 31. 1 '08
1. 2 '08 - 29. 2 '08
1. 3 '08 - 31. 3 '08
1. 4 '08 - 30. 4 '08
1. 5 '08 - 31. 5 '08
1. 6 '08 - 30. 6 '08
1. 7 '08 - 31. 7 '08
1. 8 '08 - 31. 8 '08
1. 9 '08 - 30. 9 '08
1. 10 '08 - 31. 10 '08
1. 11 '08 - 30. 11 '08
1. 12 '08 - 31. 12 '08
1. 1 '09 - 31. 1 '09
1. 2 '09 - 28. 2 '09
1. 3 '09 - 31. 3 '09
1. 4 '09 - 30. 4 '09

border="0"
laugardagur 1. apríl 2006

10:11 | Sigurjón Ragnar Viðarsson
Ég er bestur

Ég var á brautarstöðinni í gær að sækja bróður minn hann Óskar og lestin sem hann sat í var að koma frá Stokkhólmi. Stóð eyrðarlaus á brautarpallinum þegar ég sé hvar ung kona missir eitthvað úr töskunni og góður eins og ég er þá tók ég það upp og segi á snjallri sænsku:"öuh! du tappade nåt.." Sem útlegst á Íslensku sem eitthvað í ætt við:" hey! þú misstir eikkað...". Unga konan snéri sér við og segir:"tack, det var snällt av dig" sem er á íslensku:" takk fallega gert af þér", og tók við upp dótinu sínu, þá sá ég að þetta var krónprisessa Svía! Ég sagði bara:" ekkert mál" og svo var hún rokin...

Boðskapurinn í þessari sögu er sá, að þó að kóngafólk sé kóngafólk þá ferðast þau líka með lest stundum. Og þau missa hluti eins og allir aðrir.

Góðar stundir

4 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Tryggvi.
sunnudagur 2. apríl 2006

15:57 | Sigurjón Ragnar Viðarsson
Ég er samt bestur

Fyrri færsla var aprílgabb ef þið skilduð hafa fallið fyrir því þá eigið þið að segja: " ég er nú meiri kjáninn!". Enda vita allir að Kóngafólk missir ekki hluti, það eru aðrir sem halda á hlutum fyrir þau, og þeir hinir sömu geta misst hlutina. Kóngafólk fer heldur ekki í lest með almúganum, heldur á það svona einkalest sem svífur og er með þjónum og playstation 3.

Góðar stundir

ps: ég var að baka brauð.

3 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Ragnarinn.
þriðjudagur 4. apríl 2006

14:54 | Sigurjón Ragnar Viðarsson
Tvískinnungur?

Jú sjáið til, ég var úti að hjóla. Svo stansa ég á rauðu göngu/hjóla ljósi, en áður en ég stansa úti á lítilli umferðareyju, fer ég yfir eins og einbreiða gangbraut, þar sem bílar keyra. Ekkert sem þykir óvenjulegt að gera enda fór ég þarna að dæmi margra, annar hjólamaður þar á meðal. Svo líður og bíður eftir grænu ljósi, fólk týnist yfir á milli bíla en ég var ekkert að flýta mér. Sé ég þá hvar stendur hjóla lögreglumaður handan götunnar og er all illilegur á svip. Þetta voru ansi löng ljós og ég var farinn að velta því fyrir mér hvað maðurinn meinti með þessari stöðu gegn okkur og störu sem hann hafði á okkur hjólamönnunum?

Sem steinrunnin ufsagrýla í störukeppni bíður hann þolinmóður þar til grænimaðurinn kemur og hleypir öllum yfir götuna. Þá tekur hann sig til og bendir. Fyrst á mig, og vinkar mér til sín. Svo á hinn, og vinkar honum til sín. Sekt. 600 skr.- fyrir að fara á móti rauðu. Nú var mér öllum lokið. Hvað um allt fólkið sem sprangar yfir á rauðu við hliðina á ufsagrýlunni? Er það lögum ofar? Er þetta eitthvað eðli? Það er ekki tekið út með sældinni að vera hjólamaður, seisei neinei... Helvítis. Svo fær maður ekki einu sinni 25% afslátt ef maður borgar innan viku og engin stúdentaafsláttu heldur. Mér var skapi næst að bíta gat á dekkin á hjólinu hanns, en ég lét það ógert. Maður veit aldrei, hann kannski hefði sektað mig fyrir að vera með bil á milli framtannanna. Fasistar.

Góðar stundir

9 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er tinna.
sunnudagur 16. apríl 2006

22:27 | Sigurjón Ragnar Viðarsson
Heima

Ég er "heima", það er, á Íslandi. Háskalegir páskar, er að gera upp hjól og knúsa kærustuna, klóra hundi og reyna að læra aðeins svona inn á milli. Liebe gut, endilega bjóðið mér í partý ef ég býð engum fyrir næstu helgi.

Núna má einnig hitta mig fyrir, óritskoðaðan og vel máli farinn
hérna

Góðar stundir.



Enginn bjór
mánudagur 24. apríl 2006

12:30 | Sigurjón Ragnar Viðarsson
kominn "heim"

Þrátt fyrir 4 tíma seinkun á flugi, útlit fyrir engar lestir heim og önnur minniháttar skakkaföll. Þá komst ég heim klukkan 3 í nótt. Ég sofnaði ekki fyrr en 4 og vaknaði hress og kátur klukkan korter í eitt.

Á flugvellinum í gær komst ég að því að, í fyrsta lagi: ég var ekki með tölvuna mína. Hún dúsir nú á skrifborði heima hjá Elínu, en ég bind vonir við að það megi DHL-a hana til mín í vikunni (þvílíkt sem maður er háður þessu) og í annan stað: Ég var ekki með flugmiðann. Mikið panik, mikið reynt að hringja kollekt, sem virkar bara innan gsm kerfis símans og ekki í númer með frelsi. Frelsið er yndislegt, ég geri það sem ég vil... Svo kom í ljós að ég setti miðann bara í vitlausan vasa, svo ég komst í flug.

Jæja mæja, svo kem ég til Gautaborgar. Fer út úr lestinni og gleymi næstum bakpokanum mínum, hleyp til baka áður en lestinn rýkur af stað til Stokkhólms (núna gleymdi ég að segja ykkur að ég gleymdi næstum treflinum mínum í Malmö, en fyrir náð guðs þá stöðvaðist lestin eftir að ég horfði á hana taka af stað og ég náði treflinum). Í gautaborg sá ég fram á það að bíða í 1oghálfan tíma eftir sporvagni, taka ólöglegan taxabíl eða löglegan taxabíl. Löglegur taxabíll var það og ég kom heim. Nú var ég ekki með lykla til að komast inn!

En til allrar hamingju var Marco vakandi og hann hleypti mér inn. Eftir stutt spjall var ég svo kominn heim og upp í rúm...og gat ekki sofnað! Sofnaði í faðmlögum við sængina eftir um klukkustundar barning, sem fyrr var greint frá. Núna ætla ég að fara versla í matinn, það er ekki til mjólk og þá er ekki til neitt.

Góðar stundir

1 manns fyllerí, síðasti drykkjubolti er þorvaldur.
18:13 | Sigurjón Ragnar Viðarsson
á réttri hillu?

You scored as Mathematics. You should be a Math major! Like Pythagoras, you are analytical, rational, and when are always ready to tackle the problem head-on!

Mathematics

100%

Engineering

100%

Chemistry

92%

Philosophy

92%

Linguistics

75%

English

75%

Psychology

67%

Journalism

50%

Biology

42%

Art

42%

Dance

33%

Theater

25%

Sociology

25%

Anthropology

17%

What is your Perfect Major?
created with QuizFarm.com


kom mér samt á óvart að heimspeki og málvísindi skora svona hátt og líka hvað ég er í raun lélegur í stærðfræði, þar sem ég hef ómælda ánægju af henni... truth be told.

Góðar stundir

11 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Ragnar.