
|
 |
fimmtudagur 2. mars 2006
mánudagur 6. mars 2006
| 21:14 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
UPDATE!: Fyrstu niðurstöður úr prófinu birtar í dag, ég náði. Þvílíkur léttir, hinsvegar er ég ekkert spenntur fyrir stærðfræðiprófinu á morgun. Lokaáhlaup frá 8-12 á morgun, próf klukkan 14-18.
Einn niður einn til að fara!
Gekk vel í efnafræðinni, ég er glaður. Læra fyrir stærðfræði næstu daga, ekki eins óyfirstíganlegt og það virtist vera fyrir viku. Easy as 
Þetta er jafna Green's og meðhöndlar hún heildi yfir rönd flatarmáls (C) og varpar því yfir í tvöfallt heildi yfir flatarmál (D), mög spennandi! Til gamans má geta að öfugi þríhyrningurinn á myndinni... fyrir framan F-ið í 2. og 3. línu, kallast "nabla". Hver segir svo að stærðfræði sé ekki stórkostlega fyndin líka! hahahahahah
góðar stundir
ps: Elín kemur eftir 70 klst!
Enginn bjór |
föstudagur 10. mars 2006
mánudagur 13. mars 2006
| 16:59 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Allt að gerast
Lydía Ósk er byrjuð að blogga, gaman að því- hlekkur hér til hliðar (litla ósk...) Elín farin heim :'( og það styttist í að ég komi heim. Styttist enn meira í Lundúnarferð, föstudagur til þriðjudags í höfuðborg heimsveldisinns bretóníu.
Um helgina var þetta: Rómatískt kaffihús, rómantísk plötuverslun, rómantískt bíó- með bekk fyrir tvo, fullkomið kærustupara sæti! Rómantískir sporvagnar í hrönnum, rómantískt rauðvín og dinner fyrir tvo, rómantískur pöbb og rómantískur öl frá belgíu, rómantískt partý með 8 íslendingum, rómantískt bæjarrölt, rómantísk rós, rómantík sem dugir út árið og rómantík eins og hún gerist best.
Elín keypti sér tímarit til að lesa í fluginu hingað, reyndist vera karlatímarit þannig að hún skemmti sér vel við lestur um umhirðu skeggs og flott bindi með ipod vasa (?!?). Skildi það eftir og ég tók til við lestur, svo varð ég leiður á heilsíðu auglýsingum og reif þær allar úr... 47 blaðsíður af A4 auglýsingum front and back! fuck...
Góðar stundir
ps: rómantíkin var sko bara upphitun fyrir Skúla sem kemur í næstu viku...
2 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Ragnarinn. |
þriðjudagur 14. mars 2006
| 20:36 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Áskorun
seint skrifa sumir en skrifa þó...
4 störf sem ég hef unnið:
1. Blaðburðardrengur í 5 vetur
2. Dominos pezza
3. ÁTVERR sem heitir víst Vínbúðin nú til dags.
4. Hjúkrunarheimilið Holtsbúð í Garðabæ
4 bíómyndir sem ég get horft á aftur og aftur:
1. The Big Lebowski
2. Pulp Fiction
3. The nightmare before christmas
4. Snatch
4 staðir sem ég hef búið á:
1. Bæjargil 5, æskuslóðir í Garðabæ
2. Tyghusvägen 8 íbúð 002- fyrsta íbúðin sem ég flyt í, að heiman.
3. Tyghusvägen 8 íb. 101- önnur íbúðin sem ég flyt í, að heiman...
4. eee.... já... bara... Holtsbúð 103 Garðabæ, þar líður mér altént eins og ég sé heima hjá mér.
4 sjónvarpsþættir sem ég elska að horfa á:
1. Fréttir (ooojjj..nöööörd!!!)
2. Simpsons
3. MacGyver
4. Robot chicken
4 uppáhalds geisladiskar, bara 4 já... þið biðjið ekki um lítið...
1. Push the button- Money Mark
2. Blood sugar sex magic- Red hot chili peppers
3. System of a down- System of a down
4. R.A.T.M.- Rage against the machine
já... og allir hinir sem ég má ekki skrifa
4 staðir sem ég hef verið í fríi á:
1. Chambery- Frakkland
2. Sverige- út um allt
3. Glasgow- Skotland
4. uppi á öræfum íslands, Ísland, Bezt í heimi!
4 vefsíður sem ég skoða daglega:
1. mayamus.g.is
2. slashdot.org
3. mbl.is
4. ýmsar skólasíður þessi til dæmis www.math.chalmers.se/cm/education/courses/0506/detb-a-kf/ (Passið ykkur, hún er ekki öll þar sem hún sýnist...)
besti maturinn:
1. Grænmetis Lasagnað mitt
2. Sushi...er crazy gott
3. Ég er hrifinn af roastbeef, þó ekki með remúlaði og steiktum
4. Humar
4 staðir sem ég vildi vera á núna:
1. Heima hjá Elínu
2. Uppí rúmi, ég er þreyttur
3. Ungverjalandi, hjá uppáhalds Andranum mínum.
4. uppá jökli... á skíðum... á leið niður...
ætla ekki að næla neina, allir nældir, Tom Waits kannski? já nælum hann.
Góðar stundir
Enginn bjór |
fimmtudagur 16. mars 2006
þriðjudagur 21. mars 2006
mánudagur 27. mars 2006
| 18:47 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Ferðasaga
Fór til London, flug frá litlum sveitaflugvelli í Gautaborg. Mér leið eins og í bíómynd þegar ég kom þar inn, átti von á að það væri bara einn að vinna þarna og hann gerði allt. Ætli hann hafi ekki verið svipaður að stærð og Reykjavíkurflugvöllur. Komst skamlaust í gegnum vegabréfa eftirlit í Gautaborg en það gekk ekki eins jafn fljótt fyrir sig á Stanstead, skannað í bak og fyrir og spekúlasjónir um hugsanlega fölsun gerðu vart við sig. Ég komst þó í gegn að lokum. Stanstead er úti í einhverjum blábesefa, Stanstead er ekki í London. Stanstead er í eins og hálfsklukkustundar fjarlægð frá London og farið þangað kostar 20 pund. 20 PUND! það er næstum jafn mikið og flugið kostaði aðra leið frá gautaborg, mig grunar að fólk taki þetta ekki í reikninginn þegar það fer með pressunni til London. Never again segi ég... á leiðinni í rútunni sá ég skillti úti á akri sem á stóð: "stanstead, the runaway nobody wanted"
Kominn til London! Eða Uxbridge öllu heldur sem er í austasta austurhlutanum. St.Patricks day kallaði á Guinness. Rokk og ról, ég fékk hatt og var búálfur í eitt kvöld. Daginn eftir var túristadagur í London. Buckingham, Trafalgar Square, Fish'n'chips, Big Ben/house of parlament, London Eye, Thames, Tate Modern, St. Pauls Cathedral, Soho, The Intrepid Fox, Underground heim. Held ég hafi ekki gleymt neinu.
Sunnudagur, vaknað pínu seint farið á Camden Market. Þvílíkur markaður! Smakkaði eitthvað japanskt sem innihélt smokkfisk (namminamminamm!), sá skrítið fólk, hitti Vegan-mann (maður sem neitir engra dýraafurða) og ég laug að honum að ég væri grænmetisæta- sem ég er vissulega! Ég bara borða líka kjöt... Fórum heim og þar fékk ég að bragða á Quesadillas sem sambýlingar Svövu voru að elda. Par frá Mexikó, Quesadillas innihélt einhvern svepp sem vex á korni í Mexíkó. Nördið í mér kom upp um leið og mér datt í hug Korndrjólasveppur sem LSD er einangrað úr. Ég fór ekki á flug en mikið ofsalega var þetta gott! Alvöru salsa með og allt!
Mánudagur fór í British Museum. B.M er oooofsalega stórt. vorum þar í tæpa 3 tíma og ég náði svona 1/3, sá rósettusteininn, merkilega hluti frá Egyptalandi, egyptar byggðu stórt, mjöög stórt. Assýringar, Rómverjar, Grikkir, Indíánar N-Ameríku og hluta af Andes og Afríka var það sem ég náði nokkurnveginn að tékka vel á. S-Ameríku hlutinn var lokaður og ég sá ekkert af Islam og Asíu hlutanum né Evrópu. Greinilega af nógu að taka og þangað fer ég aftur. Í miðju B.M er svo bókasafn eða svokallað reading room. Stærsta hringhvelfing sem ég hef nokkurntíman komið inní, lofthæð sennilega milli 20 og 30 metrar og bækur í hillum meðfram öllum veggjum og upp c.a. 5 hæðir. Þegar þetta var byggt þá var íþróttahús MR stærsti samkomusalur í Reykjavík. Íslendingar bjuggu í torfkofum og englendingar reistu marmarhallir, össs.... Borðuðum borgara og ég hugsaði hlýlega til Vegan-istans þegar ég beit í safaríkt kjetstykkið, namminamm. Fórum svo á Denmark street, sú gata er þekkt fyrir gítarbúðir. Held að það séu fleiri búðir við þessa götu heldur en á Íslandi öllu, mikið gaman mikið fjör. Mig grunar að Svövu hafi liðið eins og strákum líður, þegar stelpur eru að "versla". Eftir það fórum við í bókabúðina Foyles sem var stofnuð um 1903, hún var grííííðar stór og við nenntum ekki, við hættum okkur ekki öllu heldur út í það að hanga þarna, auðveldlega hægt að týna sér og finnast aldrei aftur. Mig langaði í allt milli himinns og jarðar þarna inni. Keypti eina bók, Mathematical statistics and data analysis, gríðarspennandi!
Fór heim á Þriðjudegi, um morgunin taldi ég klinkið mitt og fékk út 1.49 pund, vantaði eitt penní í strætó. Fékk lánað eitt Penný. Var skutlað út á strætóstopp og kvaddi. Kominn út og taldi klinkið aftur 1.47? Hvernig fer maður að því að fá lánað eitt penný og tapa 3? jú verðbólga og slæmt gengi krónunnar segja margir, en óekki. Ég lagði saman um morguninn 1+1+1+1+2=9. Nú voru góð ráð dýr, ég var með kreditkortið mitt og á því var peningur, en. Ég er búinn að gleyma PIN-númerinu! Eftir nokkrar heiðarlegar tilraunir til að komast að númerinu, sá ég fram á það að missa af strætó, missa af tengirútu og missa af flugi. Hér bölvaði ég hástöfum. Bévítans Stanstead! Never again... Að lokum aumkaði maður í miðasölu sér yfir mér og gaf mér 10 penný, guði sé lof fyrir gestrisni! Náði strætó, náði rútu og náði flugi heim, sem var reyndar 40 mín. of seint en hvað um það.
Mæli ég með London? Hiklaust. Bara ekki fljúga á Stanstead, það sökkar feitt.
Góðar stundir
Enginn bjór |
þriðjudagur 28. mars 2006
| 18:12 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Íslendingar heitir á Slashdot
Samkvæmt þessari frétt á slashdot.org eru íslendingar vitleysingar og kjánar og telja ekki nema 200 þús manns (ég brjálast þegar fólk gerir lítið úr okkur!). Ég fíla mest athugasemdina: He[Guðmundur Ómar Friðleifsson] should have known better than to try to take a volcano god's temperature rectally.
Góðar stundir
2 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Ragnarinn. |
|