
|
 |
laugardagur 4. feb. 2006
| 03:37 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Vér erum glaðir og vér ætlum að senda Ragnar The Viking tölvupóst, hann er magnaður. Ég ætla að fræða hann um það hvernig alvöru víkingar haga sér. Raka sig með Exi er svo sem víkingalegt, en ég meina... loðhjálmar með horn og mótorhjól?!? Nee-eeiiii... aldeilis ekki.
Góðar stundir
ps: www.ragnartheviking.com fyrir áhugasama sem og aðra leikmenn
2 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Ragnarinn. |
sunnudagur 5. feb. 2006
| 10:52 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Börn og buru
Dóri labbakútur og Silja ástkona hans voru að eignast barn í gær. Til hamingju með þetta litla kraftaverk, ég get ekki einu sinni byrjað að ímynda mér hvernig tilfinning þetta er. Strákur var það, 17 merkur (mér skilst að það sé stórt...) og 54 cm. Það er ekki laust við að manni finnist maður vera gamall þegar vinir manns eru farnir að eignast börn.
Sendi líka Ragnar the viking tölvupóst, ég bíð spenntur eftir svari.
Góðar stundir
update: Hann heitir Frosti Halldórsson strákurinn litli...
4 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er JS. |
þriðjudagur 7. feb. 2006
| 18:09 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Baka brauð!
Ég er að baka brauð. Áðan ryksugaði ég, keypti í matinn, eldaði mat og næst ætla ég að ganga frá eftir matinn. Að þessu loknu ætla ég að fara læra efnafræði, og ekki vanþörf á! Próf nálgast og engin smá próf það, sagan segir samt að efnafræðin sé létt og skemmtileg þannig að ég er kannski bara að mikla þetta eitthvað fyrir mér. Ég ætla samt að taka þétt á þessu svo ég geti verið glaður og reifur að prófi loknu. 2 próf eins og venjulega, eitt í efnafræði og hitt í stærðfræði, búinn 9 marz.
Ég er ekki enn búinn að sjá Söndru síðan hún kom heim frá Stokkhólmi, en ég hef staðfestan grun um að hún sé kominn heim. Það var nefninlega matur á eldhúsborðinu sem ég hafði ekki verslað inn, og svo vaskaði einhver upp líka... pant ekki ég, því ég var í skólanum. Ég ætla að reyna sjá hana í kvöld, en tónlistarmenn/konur eru einmitt miklar kvöld og næturverur. Ég bíð spenntur...
Góðar stundir
4 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Ragnarinn. |
laugardagur 11. feb. 2006
| 09:51 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Góðverk dagsinns í gær
Ungur námsmaður keypti sér tölvu en er ekkert sérstaklega sleipur í svona tölvumálum. Svona eins og fleiri þá notaði hann bara það sem fylgdi tölvunni og hugsaði ekkert nánar út í það. Upp spunnust umræður vegna þess að hann átti í vandræðum með að tengjast þráðlausu neti heima hjá kærustunni sinni, sem á einmitt Mac tölvu. Ég kom askvaðandi til hjálpar og fínstillti tölvuna fyrir hann og viti menn! Helginni bjargað, kominn á netið heima hjá henni þegar hann var kominn á bílastæðið fyrir utan. Ekkert vandamál. Mér finnst að Microsoft ætti að skammast sín lengst upp í þeramínið á sér fyrir að vera með svona vesen að óþörfu.
Hann vafrar núna um netið með aðstoð Firefox og fyrst um sinn þá bara trúði hann varla muninum. Einföld google leit hjá honum skilaði sér á 0.25 sec með internet explorer, nokkuð gott segja sumir. Sama leit skilaði sér á 0.04 sec á firefox. Allir að nota firefox!
Góðar stundir
1 manns fyllerí, síðasti drykkjubolti er sigrun. |
sunnudagur 12. feb. 2006
| 11:51 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Tónleikar
Hitt bandið hans Sigga Jazz var að ljúka túrnum sínum í gær og spiluðu Jazz "standarda" (þ.e lög sem eru orðin vinsæl meðal jazzleikara) ásamt vel völdu eigin efni. Bítlarnir, David Bowie, Nirvana og Björk þykja kannski ekki meðal djössuðustu listamanna okkar tíma en lög þeirra tóku sig vel út í djass flutningi. Ég var sérstaklega hrifin af Bowie og Björk lögunum.
Fyrir tónleika var borðað á Julien, ítalskt og kræsilegt. Menningarlegar umræður um stöðu kvenna, innflytjenda og annars undirmálsfólks í bland við klósettbrandara og fleira skemmtilegt, það má eiginlega segja að Íslendingar séu minnihlutahópur í sjálfu sér, við bara lítum svo stórt á okkur. Það er aldrei lognmolla í Svíaríki! Seisei nei...
Svo vöktu vottar Jehóva mig í hádeginu, ég tiplaði á tánum og leit pennt út um gægjugatið sá í hvað stefndi og sendi þau svo burt á afskaplega hljóðlegan hátt og tiplaði til baka upp í rúm, af tvennu illu sko...
Góðar stundir
3 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Lydía Ósk. |
fimmtudagur 16. feb. 2006
þriðjudagur 21. feb. 2006
| 21:06 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Mora
Fór út á land um helgina og heimsótti móðurstystur mína, sem ég hef ekki hitt í 9 ár, og bróður minn sem ég hitti síðast um áramótin. Þau búa í Orsa (Móðursystir) og Mora (hinn) sem er í um 500 km fjarlægð héðan. Mikill snjór og ég notaði tækifærið og fór á snjóbretti í fyrsta skipti í 3 vetur, eins og að hjóla, maður gleymir þessu ekki. Frábært færi og yndislegt að þeysa um brekkurnar á milli þess sem ég flaug á hausinn eða keyrði á tré. Það var mjög spennandi að keyra inn í skóg á 50 km hraða og ekki vita hvort maður kæmist lifandi á lappir aftur. Festist á milli tveggja trjáa í eitt skiptið og komst hvorki lönd né strönd, skil ekki hvernig ég fór að því þetta var mjög skrítið.
Móðurstystir mín á 3 börn, það elsta er 9 ára og var drengurinn ófæddur þegar ég hitti mömmu hans síðast, þannig að ég eignaðist þarna 3 ný frændsystkin á einu bretti. Það var gaman.
Prófalestur er byrjaður, mikið að læra fyrir efnafræðiprófið sem er eftir 2 vikur, byrjaði formlega í gær og ég er að smíða mér lesplan sem á að fylgja út í ystu æsar. Stærðfræðin er svo 3 dögum eftir efnafræðiprófið og ætti ekki að vefjast mikið fyrir mér, hún er bæði skemmtileg, erfið, áhugaverð og krefjandi. Og síðast en ekki síst! Elín kemur eftir 2 vikur og 2 daga! Get ekki beðið...
SKúli ætlar líka að koma í heimsókn, 23 mars, það verður fjör... sem minnir mig á það að ég þarf að fara að plögga...
Góðar stundir
Enginn bjór |
fimmtudagur 23. feb. 2006
| 14:29 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Æ nei..
3 ný lög með "Guns'n'roses" láku á netið, publicity stunt segi ég, til þess að kanna vitökur aðdáenda. Gerðist sekur um að sækja 2 lög, There was a time og IRS, eee... já, Axl má nú alveg hringja í (ó)vini sína sem voru með honum í hljómsveit og biðja þá um að gera góða músík sem hann getur flutt. Ég get ekki beðið eftir því að platan komi út og fái hauskúpu í einkunn í stað stjarna ef þetta er það sem koma skal.
Allt í lagi að lifa á fornri frægð, eins og Rolling stones, Deep Purple og fleiri gera, en come on... að ætla sér að halda við nafni hljómsveitar eins og G'n'R einn síns liðs, og komast upp með það, það er einum of mikið held ég. Falleinkunn frá mér. Feit falleinkunn.
Góðar stundir
2 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Elín. |
mánudagur 27. feb. 2006
| 21:03 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Bévað!
Ætlaði mér á tónleika með Iron maiden 20 nóv næstkomandi, miðasala hófst í dag og henni lauk í dag. Ég þoli þetta ekki! Missi alltaf af svona :(
o jæja... hef séð þá tvisvar hvort sem er. Elín mín kemur eftir... uuu... 9 daga!
Góðar stundir
ps: Mark Lanegan og Isobel Campbell kunna að gera tónlist (gamall hank williams slagari) og myndbönd við, sexý tónlist og SEXÝ myndband, allir inná iFilm.com (ýta á iFilm, það er hlekkur)
1 manns fyllerí, síðasti drykkjubolti er Þorvaldur. |
|