
|
 |
miðvikudagur 4. jan. 2006
| 17:44 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Ahemm
130 miljónir segið þið? tjah... ætli ég mundi ekki kaupa mér minn eigin strætisvagn til að keyra mig út um allt. Ég er nefninlega búinn að fara 3 í strætó síðan ég kom hingað, það gera samtals 1500 krónur. 1500 krónur! fyrir 6 ferðir tur og retur. Þetta er skammarlegt og ég skil það vel að enginn vilji nota sér þessa þjónustu nema þeir sem hafa enga aðra valkosti (hjól einhver?). Fyrir þennan 1500 kall hefði ég getað: farið að klifra 2 og átt afgang. Keypt mér kippu af góðum bjór- og átt afgang. Keypt mér gallabuxur í H&M (sem elín gerði reyndar!). Borgað uppihald, skóla og læknisþjónustu fyrir lítið barn í Afríku (oohh.. ég er svo góðhjartaður) í að minnsta kosti 2 mánuði. Ég hefði getað borðað í skólanum mínum 6 sinnum, þ.e. í rúmlega viku. Ég hefði getað keypt mér 3 pizzur í svíþjóð, sem hefðu dugað mér í 5-6 máltíðir. En nei... ég fór í strætó!
Ef 6 taka sig saman og splæsa sér í leigubíl niðrí bæ, þá er það ódýrara en að fara í strætó. Næsta sumar ætla ég ekki að eiga bíl, né strætókort, ég ætla að hjóla. Það er ekkert erfitt... ég er næstum jafn lengi að hjóla niðrí bæ eins og að taka strætó. Svo finnast mér líka hamborgarar góðir. Strætó er vondur.
Góðar stundir
ps: gleðilegt nýtt ár öll sömul!
7 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Kindin Einar. |
þriðjudagur 10. jan. 2006
| 21:56 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
whats an intel chip doing in a mac? A whole lot more than its ever done in a PC!
Ja hérna, kokhraustir makka menn, þetta líkar mér. Sjáum hvað setur, þeir lofa fartölvu sem er 4 sinnum hraðari PB (sjæse!). Nýja tölvan heit MacBook Pro og er með tvo örgjörva, þetta er rosalegt!!!
Svo er ég kominn til Svíþjóðar aftur, án Elínar, það er rosalega erfitt að vera án hennar. Ég verð að vera sterkur næstu 3 mánuðina, þá kemur hún vonandi í heimsókn.
Góðar stundir
2 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Ragnar. |
miðvikudagur 11. jan. 2006
fimmtudagur 12. jan. 2006
| 19:01 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
bý einn?
sko... Sandra sem leigir með mér hún er aldrei heima þannig að mér líður bara eins og ég búin einn og hún kemur stundum í heimsókn. Ég gerði mér kaffi í kaffivélinni hennar og þvílíkur og annar eins expresso, ég skrifa á ljóshraða! Svo er ég líka að reyna læra smá fyrir einhvern prófakjána á laugardaginn, upprifjun í framhaldsskóla stærðfræði sem ég féll í í ágúst. Ég fæ víst einingu fyrir þetta þannig að ég verð að taka endurtökupróf, eins og auli. Fara til Mora eftir 2 vikur? Sé til. Ég sakna Elínar ennþá meira í dag en í gær, en ég veit samt að það styttist í að við hittumst. Ég sakna þín músin mín, Elska þig 17+
góðar stundir
ps: fyrir þá sem ekki vita þá býr Jakob bróðir minn í Mora, stundar nám í lýðháskóla.
2 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Ragnar. |
föstudagur 13. jan. 2006
| 16:46 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Föstudagurinn 13. í dag
Og heldur betur óheppni og heppni sem einkenndi daginn. Fyrst heppnin: Ég hjólaði með tölvuna mína niður í skóla og vandamál með að tengjast þráðlausa netinu eru úr sögunni. Þvílík heppni!
Óheppni: Þegar ég kom heim hafði ég ekkert betra að gera (ahemm..) en að fikta í tölvunni, ég var að gera tilraunir með tvo mismunandi aðgang-a (e. accounts) og mér tókst að læsa kerfisstjóra aðganginn (minn aðgang) úti úr mikilvægum skrám (algjör Hans klaufi...). Við tók mikil kaffi drykkja til að róa taugarnar (huh?) og það sem verra var, þá var hinn "aðgangurinn" líka læstur úti úr þessum skrám.
Mér leið eins ég hefði lokað skúffu, læst með lykli og hent lyklinum ofan í læstu skúffuna, sem mundi held ég nálgast aðgerðaröð á ljóshraða ef ekki hraðar...Nú voru góð ráð dýr og ég setti mig í stellingar, svona eins og þegar maður er að keyra eða hjóla ofsalega hratt og á von á því að fljúga hreinlega á hausinn eða keyra á fjall ef nokkuð skyldi koma upp á. Sem betur fer gerðist ekkert slíkt og með einstakri lagni þá opnaði ég fyrir sjálfum mér og er reynslunni ríkari í þessum málum. Fjúff! Það er alveg hægt að lenda í vandræðum með Mac eins og Pc, en ég get þó leyst mín vandamál sjálfur núna. Ég meina? hefði ég ekki bara eitt óhemju tíma í rugl með windoze og endað svo á að setja tölvuna upp aftur, örugglega.
Ég frelsaði líka hana Svövu vinkonu mína í gær, hún ætlaði að kaupa sér lap-top og var alveg rugluð í þessu Pc vs. Mac, hana langaði svolítið í ibook en öll þessi "urban myths" voru eitthvað að angra hana. Viti menn, eftir eitt e-mail frá mér sá hún ljósið og ætlar að kaupa sér ibook tölvu, hvíta, dömulega 12" ibook. Til hamingju með það Svava! Ef einhver er efins þá skal ég senda þeim þetta mail og sjá, þið munið böðuð í ljósi vera og feta hinn gullna veg það sem eftir er!
Góðar stundir
ps: ég hjólaði 22 kílómetra í dag
update: Smá eftirköst af gærdeginum, ég eyddi óvart öllum bíómyndunum mínum og öllum arrested developement, lost, Ali G og robot chicken þáttunum... demit!
2 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er jakob. |
mánudagur 16. jan. 2006
| 18:28 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
búinn að borða
...og svo smá kaffi og svo læra efnafræði. Það stefnir allt í massíft próf í mars, kíkti á gamalt próf í dag og það var... jah... spes upplifun að skilja ekki dæmi sem maður er búinn að vera hjakkast á í allan vetur. Nú skal tekið á því og ekkert til sparað. Talandi um að spara þá þarf ég að borga tvo reikninga hið snarasta, leiðindi, lítill sparnaður í því skal ég segja ykkur.
Fór í fyrsta tímann í eðlisfræði í dag, kennarinn minn er lítill gráhærð ömmu-kona. Hún er fyndin og ég hlakka til að fara í tíma hjá henni á föstudaginn.
Góðar stundir
Enginn bjór |
þriðjudagur 17. jan. 2006
| 05:59 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
kosningar
Það voru kosningar, eða prófkjör öllu heldur, í Garðabænum og í 4 efstu sætum íhaldsinns voru karlmenn. Konur telja sig hlunnfarnar og vilja breyta listanum. Breyta listanum, eftir kosningar... og vilji kjósenda virtur að vettugi. Er þetta það sem kallað er jafnrétti? Að breyta og hagræða úrslitum í lýðræðislegum kosningum svo að "það verði jöfn skiptingi"? Er þá ekki heimskulegt að hafa kosningar yfir höfuð. Ég er hlynntur jafnrétti, en ef þetta er jafnrétti þá held ég að ég stofni bara karlréttindafélag konum til höfuðs.
Góðar stundir
2 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Ragnarinn. |
miðvikudagur 18. jan. 2006
| 11:01 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Pete Dougherty og Batman 1966
Ég skil ekki svona... maðurinn er tónlistarmaður og á við geysilegan fíkniefnavanda að stríða. Aðra hverja viku koma fréttir um að maðurinn hafi verið handtekinn vegna ölvunaraksturs eða aksturs undir áhrifum fíkniefna, vegna slagsmála eða vegna þess að hann var tekinn með dóp. Er fólk í alvörunni ekkert þreytt á honum? Ég nenni ekki einu sinni að lesa þessar fréttir um hann, þær eru alltaf eins. Mig grunar að hann sé að reyna gera sig að einverskonar Kurt Cobain okkar daga. Er ekki mál að linni...
Horfði líka á leðublökumanninn frá árinu 1966 í gær, Eðal eðal eðal eðal kvikmynd. Hér kemur smá úr myndinni.
Batman: Even though their drinkers, they're still human beings.
Robin: so they have a chance to be saved?
Batman: Yes.
Robin: I'd rather be dead than not being able to trust my own eyes.
Áður nefndur Pete gæti verið einn af þessum "drinkers that need to be saved" mönnum, hann ætti að hafa samband við Batman, Batman gæti leitt hann í sannleika um það að svona líferni ætti enginn að stunda.
Fólk ætti almennt að taka sér þetta til fyrirmyndar.

Góðar stundir
Enginn bjór |
fimmtudagur 19. jan. 2006
| 12:00 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Ég nádi prófunum!
sem þýðir ad ég er i löööngu páskafríi,síðasti kennsludagur er 7 apríl og kennsla byrjar aftur 24 apríl! við erum að tala um rosalegt páskafrí. Sem fyrr eru allir velkomnir í heimsókn! Nema ég fari heim eða til Ítalíu um páskana. Sjáum til hvernig fer. Annad gott í fréttum er það að Elín, mín ástkæra, kemur í heimsókn til mín 9 marz. Get ekki beðið.
Gódar stundir.
4 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Ragnarinn. |
laugardagur 21. jan. 2006
| 09:54 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Benidorm
Ég fór á Benidorm í gær, ekki til Beni heldur á. Veitingastaður að nafni Benidorm, soldið sveittur, soldið sólbrúnn, finnst í Skövde eða Skaufaborg eins og Krissi vill kalla það. Ég hjálpaði þeim Krissa og Margréti að flytja í gærkvöldi. Brunuðum út á land, pikkuðum upp píur og búslóð og svo brunuðum við til baka. Fyrst Whisky og svo mátaði ég svefnsófann þeirra. Það var næs.
eftir 40 mínútur er svo snjóbretta og skíða stökkfimi keppni niðrí skóla. Þeir eru búnir að byggja rúmlega mannhæðar hátt (7m) fjall sem fólki er ætlað að stökkva yfir. Herra minn jesús! Það eru 10.000 skr.- í verðlaun fyrir þann/þá sem gerir best, hæst, flottast og án þess að detta. Ekki heiglum hent að gera eitthvað svona lagað, en hvað gerir maður ekki fyrir 10.000 skr.-?
Ég kannski set inn myndir, ef einhverjar verða, við tækifæri.
Góðar stundir
4 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er jakob. |
þriðjudagur 24. jan. 2006
| 13:01 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
kem heim!
Blásið af allar fyrirætlanir um að kom í heimsók um páskana, ég ætla nefninlega að koma heim. Nenni ekki að hanga hérna í rúmar 2 vikur og bora í nef eða að læra. Ég læri bara á Íslandi frekar og kyssi mína ágætustu svona inná milli. Annars langar mig líka að minna á það nú er þorrinn. Ég á þorramat og brennivín og ætla að halda mitt eigið þorrablót við tækifæri. Ég á ekki mikið af mat, ég á eiginlega ekkert nema harðfisk og brennivín. Það má kannski bæta það upp með einhverjum sænskum pylsum eða máské reyktu lambi? Íslendingafélagið er líka með þorrablót ef næg þátttaka fæst. Leggur maður í svoleiðis? Ég þori varla að opinbera "matvendni" mína fyrir öðrum, kannski bara best að halda sig fjarri slíkum mannfögnuðum.
Siggi Jazz-maður ætlar að spila Jazz á miðvikudagskvöldið. Hann lofar einhverju reglulega "súru" eins og það er kallað. Sem sagt Jazz sem er ekki fyrir hið óvana eyra og eflaust mjög...undarlegt í alla staði. Ég er óvanur en ég kíki samt þar sem ég er áhugamaður. Hlakka til.
Góðar stundir
5 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er jakob. |
fimmtudagur 26. jan. 2006
| 08:24 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Mafíujazz og fleira
Fór á tónleik með Sigga og bandinu hans, Laser, í gær. Það er fjölþjóðlegt mjög. Norrænt í alla staði. Finni, Svíi, Norrmaður og svo Siggi. Þeir spiluðu úr sér lifur og lungu á mjög jazz-ískan hátt, þetta var mjög flott. Góð sveifla í þeim.
Einn í áhorfenda hópnum vildi koma því á framfæri að Ísland væri ekki eitt af norðurlöndunum, hvað þá að það væri í evrópu. Ameríka. Ísland er í Ameríku sagði maðurinn hátt og snjallt. Ég gat ekki séð að maðurinn væri að fara með einhvern ósmekklegan grínleik. Nei, hélt því blákallt fram að Ísland væri Norður-Amerískt. Ég kannski fattaði ekki brandarann- það hló samt enginn annar? Tónlistarmannahúmor? Hann virtist nefninlega vera svona tónlistarnörd.
Góðar stundir
5 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Elín. |
mánudagur 30. jan. 2006
| 17:14 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Gleymni Hans!
Ég hjálpaði Krissa og Margréti að flytja um daginn. Þau leigðu bíl og svo gleymdi ég húfunni minni í bílnum þannig að ég varð að gjöra svo vel að annaðhvort fara í 2 tíma strætóferð og láta mér leiðast- eða. Hjóla. Ég hjólaði í dag, heiman frá mér, í skólann, til Kållered og til baka aftur heim. Samtals gera þetta rétt rúmlega 51 km (ég á vegalengdarmæli og hann sýndi 51170 metra!). Það má segja að ég hafi hjólað frá Reykjavík til Selfoss á rétt um 3:10:14 klukkustundum. Gott mál segja sumir, wow segja aðrir, sumir skilja ekkert og enn aðrir eiga ekki til orð. Ég á ekki til orð.
Svo er ég líka að verða var við flótta úr deildinni minni, fólk er farið að týna tölunni hraðar en maður nær að reikna eitt dæmi í efnafræðinni. A.m.k. 2 sem komu ekki til baka eftir áramót, útlitið er ekki gott... Bið að heilsa heim!
Góðar stundir.
4 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Garðar. |
þriðjudagur 31. jan. 2006
|