
|
 |
laugardagur 3. des. 2005
| 09:04 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
búið.. bráðum
Síðasta kennsluvika þessa árs liðin. Við tekur mannskæður prófalestur fram að desember hinum 15 þá flyt ég upp um eina hæð. 19 des er áætlað að við Elín komum á klakan og það er eins gott að það sé snjór uppí fjöllum þegar ég mæti! Ég verð alveg fjúkandi svekktur ef það verða rauð jól. Svo ætla margir skólafélagar mínir að eyða jólum og/eða áramótum skíðandi niður brekkur þess aflanga lands. Mig langar líka. Ég get ekki snúið til baka og horft framan í þá ef það eina sem ég er búinn að gera er "að baða mig í geysi" eða "drepa ísbjörn" eða einhverja álíka klisju. Mig langar á skíði!
Góðar stundir
5 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er jakob. |
fimmtudagur 8. des. 2005
| 17:24 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Prófalestur er officially byrjaður
Öll verkefni búin, allar skýrslur unnar, nú get ég loksinns farið að einbeita sér að prófalestri. Prófalestur fellst í því að reyna reikna eins mikið af gömlum prófum og maður getur. Læra það sem mest áhersla er lögð á, lesist: það sem hefur yfirleitt komið á undanförnum prófum, og vona að slíkt hið sama gerist aftur. Síðast tókst það næstum því, ég náði prófinu, en það mátti ekki miklu muna. Prófið sem ég tók braut í bága við fyrri próf og vék allhressilega frá prófum undangenginna ára þannig að maður ætti kannski að búa sig undir eitthvað í sama dúr. Jæja, í næstu viku verð ég á kafi í bókum, vikuna þar á eftir kem ég heim, einhversstaðar þarna á milli ætla ég svo að flytja. Óskið mér góðs gengis ellegar munið þið hljóta ógæfu í 5 ár... allavega 34 mínútur ef ég fæ einhverju ráðið.
Góðar stundir
7 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Tryggvi. |
laugardagur 10. des. 2005
| 18:26 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Það er búið!
Unnur Birna, úngfrú heimur. Héðan í frá liggur allt niðurávið, það getur ekki annað verið. Er eitthvað meira grand en þetta? er hægt að toppa þetta á einhvern hátt? Ég held ekki. Allt liggur niður héðan.
Tekið af heimasíðu missworld púnktur eitthvað
While others worked in the local store during their summer break, Unnur chose a more unusual job – she spent the summer months as a police officer at her local airport. “It was a really interesting job and I even got to arrest two people – . It was very different to how my life will be as Miss World as I had to wear a uniform and had my hair up. I couldn’t even wear make up!”
Shit... drink driving... and no make up! sheeeeetttt....
Góðar stundir
5 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Margrét Maack. |
föstudagur 16. des. 2005
| 08:04 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Nú er alvaran búin í alvöru!
Í gær gerðist eftirfarandi: Prófin búin, Það flæddi viðustyggð upp úr niðurfallinu hans Krissa, ég keypti jólagjafir í gær, ég var í stúdíói og hlustaði á "franska lagið", fór með ástkonu minni í Liseberg og komst í jólaskap, ég powenappaði, ég drakk 4 bolla af kaffi í einum rykk eftir powernappið.
akkúrat núna: ég er að borða eggjahræru og pulsur í morgunmat (namminamm!),
á döfinni: Flytja upp til Söndru og fara í heimsókn til múttu.
Í fréttum er þetta helst: ..um lestrarhæfni í ensku benda til að einn af hverjum Bandaríkjamönnum getur ekki lesið ensku. Einn af hverjum Bandaríkjamönnum? Eru það ekki allir? Þetta er tekið beint af mbl.is Annað og merkilegra: simpansi gabbar listfræðing. Sýnir bara hversu langt leiddir menntasnobbarar eru í snobbinu. Og hvað listamenn eru miklir rugludallar upp til hópa.
og þetta: einhver hefur stolið slóðinni www.g.is og ritar vefbók sem óð/ur væri á máli er ég eigi skil.
Góðar stundir
Ps: mig langar í útivistargræjur í jólagjöf. Karabínur, klifurbelti, klifurskó, húfu, lambúshettur, göngusokka, göngustaf, allskyns "gadgets", platibus vatnspoka, nagladekk á hjólið mitt og sitthvað fleira...
3 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Ragnar. |
þriðjudagur 20. des. 2005
föstudagur 23. des. 2005
| 23:07 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Talandi um að farsímar séu að verða of litlir... sjá betur frétt á morgunblaðinu sjííízzz.... aðfangadagur aus morgen? Ja das glaubt ich.
njótið þessarar myndar af jólaljósum svona í skamdeginu, þó er daginn farið að lengja.

allir sem borðuðu skötu rétt upp hönd! Pant ekki ég! Fyrstur fær koss frá mér í verðlaun. Bróðir minn hann Jakob lét einu sinni múta sér til að borða skötu, hann gerir það aldrei aftur.
Góðar stundir
2 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er svava. |
föstudagur 30. des. 2005
| 09:59 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Jólin búin
Nú má hætta að spila jólalög... plíííís! Þetta er komið gott finnst ykkur ekki? síðan í október eða þar um bil. Bara slútta þessu er það ekki... slaufa pakkanum og henda útí hafsauga. Annars gáfu KK og Ellen K út frábæra jólaskífu sem inniheldur engin popplög, mér fannst hún góð. Og Jack Black og Sum41 (heh?!?) gerðu frábært lag sem heitir "Things I want" og er í mögnuðum hetjurokksstíl, annað fannst mér bágt í jólalagaflórunni. Rifjaði upp jól með móður minni og komst í smá gír með kóratónlist úr dómkirkjunni frá því forðum daga og það var gaman. Svo fékk ég bókina fánýtur fróðleikur í jólagjöf frá ástkærum verðandi tengdaforeldrum mínum, ég ætla að láta fljóta eins og eitt eða tvö gullkorn hérna.
bls 22: Michael Jackson er svartur.
bls 132: kílóverð á hamborgurum er hærra en á nýjum bíl
bls 296: Þegar Picasso var ungur og félaus hélt hann á sér hita með því að brenna málverkin sín.
Þið ráðið því hvort þið trúið þessu eða ekki, ég efast svolítið um það að Michael J sé svartur.
Góðar stundir
ps: muffins skrifað afturábak er "sniffum"
Enginn bjór |
|