Ragnarskviða

Völin
Forsíða
Myndaalbúm
Videohorn

Notandanafn:
Lykilorð:
Gleymmérei:

Heilavirkni
New Scientist
The assayer
Vegur hins illa
Ég á ensku

vinir&vandamenn
Elín Skrelín
Gaddi feiti
Skúli Skelfir
Katrín frænka
101 Sandra
Litla Ósk
Comrad Sergey Popov
Natalie the busy bee
Sixerinn
sigfús frændi
Vignir (og Krissa?)

Það sem mér finnst gaman að skoða
Baggalútur
News for neerds, stuff that matters
Eppli
Æðri menntastofnun
Prjóna meira!
Russell´s teapot
VW rúgbrauð

Fortíðin
1. 8 '05 - 31. 8 '05
1. 9 '05 - 30. 9 '05
1. 10 '05 - 31. 10 '05
1. 11 '05 - 30. 11 '05
1. 12 '05 - 31. 12 '05
1. 1 '06 - 31. 1 '06
1. 2 '06 - 28. 2 '06
1. 3 '06 - 31. 3 '06
1. 4 '06 - 30. 4 '06
1. 5 '06 - 31. 5 '06
1. 6 '06 - 30. 6 '06
1. 7 '06 - 31. 7 '06
1. 8 '06 - 31. 8 '06
1. 9 '06 - 30. 9 '06
1. 10 '06 - 31. 10 '06
1. 11 '06 - 30. 11 '06
1. 12 '06 - 31. 12 '06
1. 1 '07 - 31. 1 '07
1. 2 '07 - 28. 2 '07
1. 3 '07 - 31. 3 '07
1. 4 '07 - 30. 4 '07
1. 5 '07 - 31. 5 '07
1. 6 '07 - 30. 6 '07
1. 7 '07 - 31. 7 '07
1. 8 '07 - 31. 8 '07
1. 9 '07 - 30. 9 '07
1. 10 '07 - 31. 10 '07
1. 11 '07 - 30. 11 '07
1. 12 '07 - 31. 12 '07
1. 1 '08 - 31. 1 '08
1. 2 '08 - 29. 2 '08
1. 3 '08 - 31. 3 '08
1. 4 '08 - 30. 4 '08
1. 5 '08 - 31. 5 '08
1. 6 '08 - 30. 6 '08
1. 7 '08 - 31. 7 '08
1. 8 '08 - 31. 8 '08
1. 9 '08 - 30. 9 '08
1. 10 '08 - 31. 10 '08
1. 11 '08 - 30. 11 '08
1. 12 '08 - 31. 12 '08
1. 1 '09 - 31. 1 '09
1. 2 '09 - 28. 2 '09
1. 3 '09 - 31. 3 '09
1. 4 '09 - 30. 4 '09

border="0"
miðvikudagur 2. nóv. 2005

19:17 | Sigurjón Ragnar Viðarsson
Ég er að fara í bíó á eftir, á mynd sem heitir "The constant Gardener" og er með Ralph Fiennes og Rachel Weisz í aðalhlutverkum. Veit einhver eitthvað um þessa ræmu? Ekki það að ég nái að lesa það áður en ég fer í bíó, en bara svona uppá djókið.

Sá á internetinu áðan Barða nokkurn er við Jóhann er kenndur ganga út úr viðtali hjá honum kjánakarli í kvöldþættinum á skjá einum... langa setningin maður.... var þetta mikill skandall? Ég sá nebblega ekki allan þáttinn bara þetta þegar hann gekk út.

í þessum töluðu orðum kostar apple powerbook w/superdrive (og ljósi í tökkunum) 112 þús kall, heima kostar hún 235 þús.

In your face Flanders!

Góðar stundir

ps: sá Anchorman aftur um daginn, er á leiðinni að verða skyldueign og eðalklassík.

Enginn bjór
fimmtudagur 3. nóv. 2005

16:50 | Sigurjón Ragnar Viðarsson
Fór á "The constant gardener" og hún er góð. Mjög gáfuleg mynd um gáfuleg málefni sem fær mann til að velta fyrir sér ákveðnum spurningum um stóru lyfja fyrirtækin (smá spoiler, vona að það sé í lagi) og hvernig þau vinna. Þetta gæti orðið minn aðalatvinnuveitandi í framtíðinni, ég er altént á réttri braut hvað nám varðar. Kannski þessi mynd verði til þess að maður haldi sig bara frá öllu svona lyfjabraski. Anyhow, www.rjominn.is er nýtt íslenskt tónlistarvefrit kíkið á það og sjáið það spretta úr spori, ég bíð samt eftir meiri "mainstream" tónlistarumjöllunum, ekkert af því sem er að finna þar hef ég heyrt í...eða heyrt um ef út í það er farið.

Góðar stundir

ps: krónan styrkist enn... sem þýðir að powebook lækkar enn í verði

Enginn bjór
þriðjudagur 8. nóv. 2005

07:20 | Sigurjón Ragnar Viðarsson
Í gær hjálpaði ég Sigga að flytja. Fengum lánaðan bíl hjá Datateknik (takk enn og aftur Tryggvi) og rumpuðum þessu af í 2 ferðum. Sandra svaf í helli í nótt því nær öll húsgögnin voru í eigu Sigga, það sem var eftir var: eitt lítið borð, einn klappstóll, rúmið hennar Söndru, 2 lucky bamboo sprotar og eitthvað dót í ískápnum. Annars bara... ekkert. Hún er búin að ýja að því að mér sé óhætt að fara bara að flytja upp þegar mér henntar.

Og fyrir ykkur sem ekki vitið þá er Elín að koma heim um jólin til að vera, sendir mig einan til baka og ég og Sandra ætlum að vera roomies.

Ég er líka að gæla við það að laga magnarann minn sjálfur (gítarmagnarann). Er búinn að finna rásateikningu og búinn að lesa mér til um hvað sé sennilegamjöglíklegapottþétt að magnaranum og Siggi ætlar að lána mér lóðboltann sinn, með hjálp guðs og góðra manna ætti þetta ekki að vera mjög erfitt (cross my fingers) verk og jafnvel að maður treysti sér í smá yfir og upphalningu í leiðinni. Sagan gengur fjöllunum hærra að það sé lítið mál að þeyta þessum magnaraskratta upp í 60W (er 30W) án vandkvæða, meira en nóg fyrir 42 fermetra. Rakst á skemmtilega heimasíðu þegar ég var að leita að rásateikningu (sem ég svo fann þar), setti link á hana í heilavirkni boxið.

góðar stundir

3 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Krissa.
fimmtudagur 10. nóv. 2005

13:31 | Sigurjón Ragnar Viðarsson

-veit ekki hvort thid hafid heyrt Svía tala ensku. Thad er vont. Mjög vont. Skólafélagi minn situr hér vid hlidina á mér og var ad tala um hljúmsveitina Hipocracy- eda Hypocreisy fyrir thá sem ekkert vita. Hvernig gengur svona fólki erlendis thar sem thad tharf ad tala af sér og opinbera vankunnáttu sína í enskum framburdi? Verdur ekki allt bara einn stór misskilningur? Cheezes

Gódar stundir

4 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er jakob.
sunnudagur 13. nóv. 2005

11:28 | Sigurjón Ragnar Viðarsson
Birgitta er víst til!


Mikil fagnaðarlæti brutust út þegar íslendingar komust að því að "Birgitta er til í alvörunni". Hefur þessi fólksfælna söng- og leikkona loksinns opinberað tilvist sína með því að syngja "live" á "tónleikum". Það var Morgunblaðið sem greindi frá þessu í morgun.

Annað ómerkilegt í fréttum var ekkert. Hinsvegar er ánægjulegt að segja frá því að Hjálmar fengu gullflögu um daginn, húrra fyrir því!

Góðar stundir

1 manns fyllerí, síðasti drykkjubolti er Tryggvi.
miðvikudagur 16. nóv. 2005

15:22 | Sigurjón Ragnar Viðarsson

Það er yfirvaraskegg á koddanum mínum!

Já... heldur betur herlegheitin sem þessi blessuðu yfirvaraskegg standa fyrir. Ég var semsagt með yfirvaraskegg um síðustu helgi, það var magnað, sérstaklega þar sem ég var líka með barta og í bleikri skyrtu með gelað hár, greitt til hliðar, og sólgleraugu. Ég leit út eins og þjóðverji... eða Elvis! Já Elvis er betra, það eru sem betur fer (því miður?) engar myndir til af mér þar sem við töpuðum myndavélinni okkar um daginn og hún er enn ekki komin í leitirnar. Ég get samt huggað mig yfir því að sá/sú sem fann hana er pottþétt batteríislaus um þessar mundir- vona að það sé ekki hægt að kaupa batterí og hleðslutæki stakt...

Góðar stundir

5 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er eigandinn.
sunnudagur 20. nóv. 2005

09:14 | Sigurjón Ragnar Viðarsson
Ég náði!


Báðum prófunum. Svo kommst ég líka að því í gær að ég er með súlfat óþol. Súlfat er efni sem fyrirfinnst náttúrulega í mörgum ávöxtum og meðal annars vínberjum. Það kemur í veg fyrir að vín haldi áfram að gerjast þannig að það geymist betur og breytist síður í edik með aldrinum. Stundum bæta vínframleiðendur súlfati í vínið, þá helst í sæt hvítvín, til þess að bæta geymslueiginleika þess. Í gær drakk ég sætt hvítvín. Og viti menn! Það var sem við manninn mælt, ég var búinn með hálft glas þegar hún Elín mín tók eftir einhverju undarlegu. Ég var kominn með rauða grímu í kringum augun og uppá enni. Við tók mikil hystería og ég var nú ekki lengi að finna þetta ástand með aðstoð google (óbein auglýsing) og nú er mér hollast að halda mig frá ódýru sætu hvítvíni. Rautt er hinsvegar alltíkei og bjór og sterkt þannig að mér eru nú ekki allar bjargir bannaðar.

Góðar stundir

3 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er JS.
fimmtudagur 24. nóv. 2005

15:53 | Sigurjón Ragnar Viðarsson
Dikta- Hunting for happiness

Diskurinn kominn út og ég fékk hann í hendur í dag. Ég er kannski ekki alveg dómbær á plötuna þar sem ég gæti gerst æði hlutdrægur- sérstaklega í ljósi þess að ég fæ þakkir í umslaginu (takk fyrir mig) þannig að ég ætla bara að segja eitt. Drulluþéttir maður!

Annað í fréttum er það að ég kem heim þann 19. des og fer aftur 10. jan og á milli þess sem ég held jól og áramót ætla ég að drýgja tekjurnar í vínbúðinni í Garðabæ. Kannski maður hendi sér í eins og einn gleðskap ef einhver býður heim. Garðar skuldar innflutningspartý veit ég... tekur hann á sig fyrsta teiti nýs árs?

Komment vikunnar :"Þetta eru bara aumingjar": Sandra nágranni um sænska stráka.

Þetta var vinsælt daginn sem ég fæddist

august 21 1982

UK single Come On Eileen by Dexy's Midnight Runners (kúl)
USA single Eye Of The Tiger by Survivor (ekki jafn kúl)
Australia single I Ran (So Far Away) by A Flock Of Seagulls (hella cool)
UK album Fame by Kids from Fame (sorp)
USA album Mirage by Fleetwood Mac (kúl)

tékkið sjálf hvað var vinsælt þegar þið fæddust http://www.albumvote.co.uk/

Góðar stundir

6 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er jakob.
sunnudagur 27. nóv. 2005

10:59 | Sigurjón Ragnar Viðarsson
Eignaðist systur um helgina... og mömmu! Ég á sko alveg helling af mömmum núna: Mömmu mína, mömmu hans Dodda, mömmu hennar Söndru(sem er líka systir mín), tengdamömmur eru líka með þannig að mamma hennar Elínar líka. Pabbi á líka konu- hún er líka mamma mín, eee...Helga mamma hans Skúla líka, 6! Geri aðrir betur!

Mugison í kvöld? Það held ég nú...

Góðar stundir

3 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Garðar.
mánudagur 28. nóv. 2005

00:25 | Sigurjón Ragnar Viðarsson
Mugison rokkar


hann tók í hööööndiná méééér.... heeeiiiilsaði mééééér... hann sagði! Komdu sæll og... blessaðuuuurrr... neeeii djók. Hann vildi samt ekki skipta á súkkulaðistykki og einum geisladisk... ég var bara svo blankur ég gat ekki gefið meira. Ojæja... seinna bara. Annars spilaði maður á undan honum, æði sérstakur. Bob Log III kallar hann sig, frá Tuscon í Arizona. Hann var með svona fighterjet-hjálm á höfði og við hann hafði hann teipað símtól. Símtólið notaði hann til að syngja í og var tólið tengt í PA system með snúru sem hann setti í samband við hjálminn. Svo spilaði hann eeeeeiiiitt langt lag með smá varíasjónum, ansi hressilegt á köflum, en ekki mikið fyrir eyrað svona til lengdar. Annars mæli ég alveg með því að fólk reyni að finna smá tóndæmi... en bara smá, ekki mikið, því þá fær maður alveg nóg.

Góðar stundir

1 manns fyllerí, síðasti drykkjubolti er SkuliZ.
16:20 | Sigurjón Ragnar Viðarsson
Það snjóar!


4 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er eigandinn.