Ragnarskviða

Völin
Forsíða
Myndaalbúm
Videohorn

Notandanafn:
Lykilorð:
Gleymmérei:

Heilavirkni
New Scientist
The assayer
Vegur hins illa
Ég á ensku

vinir&vandamenn
Elín Skrelín
Gaddi feiti
Skúli Skelfir
Katrín frænka
101 Sandra
Litla Ósk
Comrad Sergey Popov
Natalie the busy bee
Sixerinn
sigfús frændi
Vignir (og Krissa?)

Það sem mér finnst gaman að skoða
Baggalútur
News for neerds, stuff that matters
Eppli
Æðri menntastofnun
Prjóna meira!
Russell´s teapot
VW rúgbrauð

Fortíðin
1. 8 '05 - 31. 8 '05
1. 9 '05 - 30. 9 '05
1. 10 '05 - 31. 10 '05
1. 11 '05 - 30. 11 '05
1. 12 '05 - 31. 12 '05
1. 1 '06 - 31. 1 '06
1. 2 '06 - 28. 2 '06
1. 3 '06 - 31. 3 '06
1. 4 '06 - 30. 4 '06
1. 5 '06 - 31. 5 '06
1. 6 '06 - 30. 6 '06
1. 7 '06 - 31. 7 '06
1. 8 '06 - 31. 8 '06
1. 9 '06 - 30. 9 '06
1. 10 '06 - 31. 10 '06
1. 11 '06 - 30. 11 '06
1. 12 '06 - 31. 12 '06
1. 1 '07 - 31. 1 '07
1. 2 '07 - 28. 2 '07
1. 3 '07 - 31. 3 '07
1. 4 '07 - 30. 4 '07
1. 5 '07 - 31. 5 '07
1. 6 '07 - 30. 6 '07
1. 7 '07 - 31. 7 '07
1. 8 '07 - 31. 8 '07
1. 9 '07 - 30. 9 '07
1. 10 '07 - 31. 10 '07
1. 11 '07 - 30. 11 '07
1. 12 '07 - 31. 12 '07
1. 1 '08 - 31. 1 '08
1. 2 '08 - 29. 2 '08
1. 3 '08 - 31. 3 '08
1. 4 '08 - 30. 4 '08
1. 5 '08 - 31. 5 '08
1. 6 '08 - 30. 6 '08
1. 7 '08 - 31. 7 '08
1. 8 '08 - 31. 8 '08
1. 9 '08 - 30. 9 '08
1. 10 '08 - 31. 10 '08
1. 11 '08 - 30. 11 '08
1. 12 '08 - 31. 12 '08
1. 1 '09 - 31. 1 '09
1. 2 '09 - 28. 2 '09
1. 3 '09 - 31. 3 '09
1. 4 '09 - 30. 4 '09

border="0"
laugardagur 1. okt. 2005

05:53 | Sigurjón Ragnar Viðarsson
Nú er klukkan 08:00 hjá mér og ég er að leggja af stað í klettaklifur eftir klukkutíma eða svo. Eiturgaman í 2 daga og svo heim sunnudagskvöldið. Ég er að springa úr spenningi. Á meðan ég er í burtu getið þið skoðað þessa heimasíðu sem fjallar um klettaklifur.

Góðar stundir

2 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Ragginn.
mánudagur 3. okt. 2005

20:32 | Sigurjón Ragnar Viðarsson
Fór að klifra. Kom heim. Setti inn myndir. Þær eru næs. Ég fékk marblett. Og skrámur. Sólsting kannski? Þetta er eitthvað sem allir ættu að prófa, það er ekki hægt að lýsa því hversu góð tilfinning það er að sigrast á 25 metra háum klettavegg sem virðist ókleifur við nána athugun. En viti menn! Eftir nokkrar skrámur, einn eða tvo marbletti og töluvert hnoð og hnjask, stendur maður uppi... og horfir niður á vegg sem virðist ekki vera ókleifur lengur. Og svo fer maður aftur og aftur og aftur og... Bezt í heimi!

Góðar stundir

4 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Skúli Z.
fimmtudagur 6. okt. 2005

22:54 | Sigurjón Ragnar Viðarsson
Steve Vai gerir harða atlögu að titlinum besti Gítarrunkari í heimi. Ég var á tónleikum með kappanum og náði meira að segja í gítarnögl, í henni eru galdrar og ég er að fara tjössa gítarinn minn í klessu... þetta er nebblega svona Steve Vai gítar og þegar tveir S.V gripir koma saman, í mínu tilviki Gítar og nögl, þá fara yfirnáttúrulegir hlutir að gerast. Ég held ykkur upplýstum hvað gerist á næstu vikum, fyrir utan prófin þá... í sambandi við gítarinn og hversu margar hljóðhimnur ég beygla og beygi (humm.. var þetta ekki í sykurmola laginu lúftgítar?"... ég beyglann og beygi... ég togann og teygi ...lúftgítar!").

- Ragnar, með beyglaða hljóðhimnu:.

Góðar stundir

Enginn bjór
föstudagur 7. okt. 2005

11:50 | Sigurjón Ragnar Viðarsson
Matlab prufung im 25 minuten

update: ég náði því= brandari


function [p,q]=prod(b,n)

p=1
for i=1:1:n
p=p*(b+i);
end

q=p/n

Flóknara var það ekki í þetta skiptið, það var samt ein sem fór að grenja og var almennt að missa sig...

Gódar stundir

Enginn bjór
mánudagur 10. okt. 2005

13:26 | Sigurjón Ragnar Viðarsson
Mæli með Nýja Franz Ferdinand disknum, hann er góður betri bestur. 101 Siggi í mat á eftir, kjöt og grænpiparsósa. Kannski eins og einn öl... eða tveir... Fékk póstkort frá Kenýa áðan(takk Katrín :)), ekki svona Nígeríubréf samt, það var frá henni Katrínu frænku minni, en hún er einmitt að kenna efnafræði og sitthvað fleira þarna í einhverjum einkaskóla (www.greenstedsschool.com) þarna suðurfrá. Skrítið að fá svona Snail-mail frá Kenýa... one mouseclick away en þetta bréf var einar 2 vikur á leiðinni (stílað 24/9), svona hefur þetta nú breyst börnin góð! Ef forvitnin er að drepa ykkur og þið viljið fræðast um það hvers vegna mörlandinn fer til Kenýa að kenna þá vísa ég á hlekkinn hér til hliðar er ber nafnið "katrín frænka"

Góðar stundir

1 manns fyllerí, síðasti drykkjubolti er Elín.
fimmtudagur 13. okt. 2005

05:02 | Sigurjón Ragnar Viðarsson
Aaahhh... Elín fór til Noregs og færði björg í bú, lýsi(the shining!), súkkulaðirúsínur, suðusúkkulaði o.fl. Í morgun var ég svo mikill íslendingur að ég sá mig knúinn til þess að hlusta á rás 2 á netinu. Það er gott að búa í Gautaborg! Maður þarf ekki að vera á Íslandi til þess að vera íslendingur... Ísland tapaði alveg jafn stórt (1-3) og þegar ég er á Íslandi þannig að það er allt eins og það á að vera.

Góðar stundir

3 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Eigandinn.
20:36 | Sigurjón Ragnar Viðarsson
hey? Miðað við gengið nú til dags er ódýrara að kaupa sér apple tölvu í Svíþjóð heldur en í Bandaríkjunum sjálfum. Dæmi: 15" powerbook (með ljósi í tökknunum ;)) kostar í svíþjóð 13.833 kr.- eða sem samsvarar 108 þús krónum. 108 þús krónum! sama tölvu er hægt að kaupa í pandaríkjunum fyrir 1999$ sem samsvarar 123þús krónum. hmm... næst á dagskrá er Ipod. Ipod kostar í svíþjóð (30 Gb video) 2550 taxfree = 20 þús kjell rétt rúmlega. í Spanexríkjunum 299$ =18400 sem er ívíð ódýrara. Á íslandi kosta þessi tæki... tjahh...ívíð meira. Ég sé ekki ipodinn inná síðunni þeirra en 20 Gb ipod kostar 44900 kr.- og powebook 15" (með ljósi...) kostar 199900 kr.-

Góóóóðar stundir

2 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Eigandinn.
þriðjudagur 18. okt. 2005

16:51 | Sigurjón Ragnar Viðarsson
Herkvaðning!
Ég fékk herkvaðningu... það er... Herinn kvaddi mig. Þeir sendu mér bréf og sögðu mér að ég væri of gamall fyrir herinn þannig að ég þyrfti ekkert að hafa áhyggjur af því að fara í herkvaðningu. Ég hef aldrei verið of gamall... mér líður eins og skorpnu kindahræi. Eeeeenn... ég gleymdi kannski að minnast á það um daginn en iPodinn minn, hann dó drottni sínum. Ég fór næstum að skæla en fattaði svo að hann var enn í ábyrgð þannig að ég sendi hann í viðgerð. Í dag fékk ég nýjan iPod. Nýjan. Þetta kalla ég sko þjónustu! Fyrst ég er orðinn of gamall í herinn þá megið þið dást að þessum unga pilti er mundar eitthvert weapon of mass destruction, hann er sko ekki of gammel þessi óneeei... hann er sko ekkert of gamall fyrir svona byssuleiki sko.




Góðar stundir

1 manns fyllerí, síðasti drykkjubolti er Skúli Z.
miðvikudagur 19. okt. 2005

17:00 | Sigurjón Ragnar Viðarsson
Eitt próf búið, eitt eftir. Púff...

Mikið um tónleika á næstunni og erfitt að velja úr. Á Íslandi er eitthvað Airwaves í gangi, verður nú ekki mikið úr því fyrir mig. En þetta verður í Gautaborg næstu 2 mánuði: Sigurrós (úff), Babyshambles, BRMC, Hell is for heroes, Chic Corea, Andrew Bird, Elton John (hmm?), Bob Dylan (wow!), Gavin DeGraw(One Tree Hill gaurinn theme lagið), The Murder junkies, The kills og sitthvað fleira...

Góðar stundir

ps: krissa, ef þú villt þá geturðu slegið tvær flugur í einu höggi og séð BRMC og babyshambles í einni ferð, 13 og 19 nóv ;) hehehe

8 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Krissa.
sunnudagur 23. okt. 2005

17:23 | Sigurjón Ragnar Viðarsson
Í dag er móldagurinn og um gervalla veröld fagna efnafræðingar og áhugamenn um efnafræði. Fyrir ykkur sem ekki vitið hvað mól er þá bendi á á opinbera heimasíðu mólvinafélagisinns www.moleday.org



Enginn bjór
fimmtudagur 27. okt. 2005

17:21 | Sigurjón Ragnar Viðarsson
Andrew Bird er magnaður tónlistarmaður. Jafnvígur á fiðling sem xylophone og á þetta spilar hann hvað ofan í annað, svona eins og Mugison okkar Íslendinga. Ég tók upp tónleikana hans og ætla mér að reyna laga til hljóminn á þeim og svo er aldrei að vita nema þetta verði jólagjöfin í ár... Á undan Andrew spilaði stór Ameríkani sem kallaði sig Crooked fingers, hann var góður á gítarinn og söng skemmtileg lög, ég tók hann líka upp. Ég gruna hann um að vera sósíaldemókrata... altént var hann á móti "sinni" eigin ríkisstjórn og honum fannst fínt að vera í Svíþjóð.

góðar stundir

ps: ég veit þið trúið því ekki en... ég spurði efnafræði doktorsnema hvort hún hefði haldið upp á daginn í gær(sunnudag) þegar ég var í verklegu á mánudeginum. Og hún kom af fjöllum! Vissi ekki neitt! Eins og lítið barn í sunnudagaskóla... bara stóð á gati og hló að þessari sniðugu hugmynd. Ég skal segja ykkur það...

2 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Eigandinn.
föstudagur 28. okt. 2005

12:04 | Sigurjón Ragnar Viðarsson
Það var pöbbarölt í skólanum í gær, ég rölti. Hélt uppi heiðri þessa hundslappa Íslendingafélags sem ekki nennir að hittast fyrir krónu með gati. Ekki furða að við töpum alltaf í fótbolta, það ríkir engin samkennd milli okkar. Allir bara í sitthvoru horninu með nefið ofan í sínum eigin koppi, vilja helst ekki viðurkenna að við séum íslendingar og blöndum okkur inn í hóp ljóshærðra, axlapeysandi, mokkasíusvía og þykjumst vera heimsborgarar. Við vorum 4 en áttum von á.. tjah 20, Elín, undirritaður, Gauti(skauti) og Tryggvi. Þetta var heljarinnar rölt og endaði ekki fyrr en undir blámorgun, jibbíkóla fyrir því!

Góðar stundir

4 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Sanders.
sunnudagur 30. okt. 2005

11:19 | Sigurjón Ragnar Viðarsson
Internationellt matarfest í gær. Ég og Elín gerðum plokkfisk, sem okkur fannst frekar dodgy matur fyrir útlendinga að borða, en við tókum sénsinn. Plokkfiskurinn kláraðist, Spánverjarnir voru mjööög hrifnir af þessu, þjóðverjunum líkaði þetta einnig, Svíarnir og skotarnir borðuðu líka og allir voru á sama máli. Nammigott! Ég var mjög hissa á þessum aðförum að okkar þjóðlega rétti, en mjög ánægður líka. Ísland! Bezt í heimi!

Góðar stundir

Enginn bjór