
|
 |
föstudagur 2. sept. 2005
mánudagur 5. sept. 2005
| 15:55 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Herrakvöld í kvöld. Allir að vera í blazer og haga sér eins og karlmenn, ég sé fyrir kjöt, koníak, vindil og keeellingar! Tók öryggispróf í dag, veit ekki hvort slíkt tíðkast fyrir efnafræði fólk heima, en hér fáum við ekki að setja okkar litla nef inn fyrir tilraunastofu dyr fyrr en við náum þessu prófi. Fyrir hvern tíma er svo yfirheirsla í anda STASI áður en maður fær að fikta með nokkur efni. Ef maður mætir of seint er maður sendur öfugur út aftur með skömm í brók og hor í nefi. Ég náði prófinu btw. Svo var okkur sett fyrir að skrifa um það hvers vegna við lentum á þessari námsbraut en ekki einhversstaðar annarsstaðar. Kennarinn minn svaraði mér á þennan háttinn: " Fín ritsmíð hjá þér, en ég skil barasta ekki afhverju þú fórst ekki bara beint í einhverja eðlisfræði vinurinn...ojæja, þú finnur þér vonandi eitthvað skemmtilegt að gera eftir útskrift". Hana nú hugsaði ég með mér, er manninum alvara? Ég ætla rétt svo að vona að ég sé búinn að velja rétt í þetta skiptið. Já... svo er ég að fara rokka spikfeitt á morgun, busarokkið verður haldið hátíðlegt og á play-listanum er Whiskey in the jarroo...! með írskum/metallica áhrifum, Twisted sisters: Were not gonna take it og J. Geils band: Centerfold.
Góðar stundir
Enginn bjór |
miðvikudagur 7. sept. 2005
| 19:04 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Read it and wheap. Ipod Nano. Enn og aftur eru apple menn að gera allt vitlaust í tækniheiminum. Sú saga gengur fjöllunum hærra að þeir séu að fara kynna síma í kvöld. Fylgist með á heimasíðu apple.
Góðar stundir
OG ÞEIR KYNNTU SÍMA! sjá nánar á apple.com
Enginn bjór |
föstudagur 9. sept. 2005
laugardagur 10. sept. 2005
| 10:09 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Fáránlega fínir tónleikar með Kaizers Orchestra í fyrra dag, myndir hér. Í gær var ég vígður 1 árs nemi eftir 4 vikna strembna busavígslu sem var bæði fræðandi og skemmtileg. Hörku dansiball í gær, eðal matur á einum af fínni veitingastöðum Gautaborgar, vín- hvítt og rautt, fordrykkur, koníak, ræðuhöld, skemmtiatriði og ég veit ekki hvað og hvað. Myndir koma von bráðar.
Góðar stundir
Enginn bjór |
þriðjudagur 13. sept. 2005
| 15:22 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Ummm.... ég þekki strák sem heitir Sam Goldman, mig grunar að hann sé af gyðingaættum. Ekki vegna þess hvernig hann er, heldur er það bara nafnið. Hann er mjög fínn. Hann opnaði heimili sitt fyrir mér og við borðuðum saman hádegismat ásamt 2 öðrum. Á matseðlinum var: Kjötbollur, lingon sulta, kartöflustappa og sósa. Þetta borðuðum við: Kjötbollur, lingon sultu og kartöflustöppu. Maðurinn sem bjó til sósuna brenndi hana við botninn og hrærði svo duglega í þannig að sósan smakkaðist eins og misheppnuð grillveisla. Það var samt næstum því gott og ég fékk mér smá til þess að sýna þeim hvar Davíð keypti ölið. Svo minnst sé á öl, þá ætlum við Íslendingarnir á Tyghusvägen 8, Ég, Elín, Sandra og Siggi að fá okkur öl saman í kvöld. Klukkan 7 megið þið hugsa til okkar og tjaa.... senda okkur góða strauma, því hér kostar ölið 29 kr (0.4l). 29 kr! Huxa Íslendingar með sér, það er næstum gefins! En Adam var ekki lengi í paradís því samkvæmt gengi dagsinns í dag eru 29 skr= 239 iskr. Þannig að eins og þið sjáið er sko ekkert gefins að þjóra í Svíaveldi...HAAHAHHAHAHAH. Ef við setjum þetta svo í samhengi sem íslendingar skilja þá kosta sem sagt 10cl (1 dl=0.1L=100mL) ca.6 kr sem gera 300 kr fyrir hálfan líter (0.5L~500mL).
Annað. Sænska konungsfjölskyldan hefur ákveðið að fara í hart. Þýsk slúðurtímarit- á borð við Bild-Zeitung sem og fleiri slúðurblöð hverslensk, eru þau blöð sem eiga yfir höfði sér ákærur í hrönnum ef þau eru staðin að því að birta lygar og óhróður sem eiga sér enga stoð í raunveruleikanum. Gengið hefur verið nærri konungsfjölskyldunni með fréttum um framhjáhald, fóstureyðingum, kynlífs-orgíur, drykkjulæti og slagsmál og lét Viktoría krónprinsessa hafa eftir sér að hún bæri ör á sálinni eftir sumar af þessum sögum.
Góðar stundir
3 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Garðar. |
sunnudagur 18. sept. 2005
| 21:50 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Afmæli hjá okkur í dag. Elín orðin 19 ára og þvílík og önnur eins veisla. Ég kom henni á óvart með því að bjóða fullt af fólki í veislu og hún vissi ekki neitt. Sátum hér frá 5-10 og spjölluðum, átum og drukkum. Gaf þeim sem vildu íslenskt brennivín og næst á dagskrá er að gefa þeim hákarl að smakka. Annars bara slakur, keyptum okkur sjónvarp á 1600 kall (iskr) og það sýnir ekki rétta liti, hahahha! grænn er rauður og blár er grænn- eða rauður... anyhow.. sumir eru með bláar varir og allir sem spila fótbolta spila á rauðu grasi. Very spes..
Vill líka óska Kristjönu yndislegu til hamingju með daginn, hún varð 23 í dag stúlkan, megi hún lengi lifa! húrrahúrrahúrrahúrra!
Góðar stundir
Enginn bjór |
mánudagur 19. sept. 2005
| 17:46 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Jeeeehaaa!!! komið Linux for human beings á heimilið, einnig þekkt sem Linux Ubuntu. Elín er með titilinn Linuxhacker á heimilinu þar sem það er vélin hennar sem keyrir þennan eðal. No prob að setja þetta upp og kominn á netið áður en ég gat sagt linuxhacker upphátt. Mæli með þessu því þetta er sannkallað linux for human beings. Er að gæla við að dual boota vélina mína og keyra þetta samhliða mac os... eeeen... það er kannski enginn tilgangur þar sem mac os er betra en þú getur ímyndað þér. Engin þörf á Garðari hér til þess að vera sys.admin á mínu heimili, Elín sér um þetta.
Til hamingju með daginn Tinna! megir þú lengi lifa. Húrrahúrrahúrrahúrra!
Góðar stundir
5 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Garðar. |
fimmtudagur 22. sept. 2005
| 15:21 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Ég var klukkaður.
1. Ég er eldri en flestir samnemendur mínir í skólanum, jafnvel eldri en sumir af eldribekkingunum líka!
2. Ég var að fá afturdekk á hjólið mitt, loksins, og fór út að hjóla áðan og datt. Núna er ég með holu á leggnum. Það kom blóð.
3. Ég var að reima á mig skóna mínu um dagin og tungan losnaði úr þeim
4. Mér þykir vænt um fólkið í kringum mig.
5. Sjónvarpið mitt sýnir negatífa liti. Rautt er grænn, blár er húðlitur og fleira í þeim dúr. Grænn er rauður. Gulur er gulur(held ég).
það er búið að klukka alla þannig að ég þarf ekki að klukka neinn.
Góðar stundir
Enginn bjór |
| 17:11 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Já... og svo er ég líka að fara á skíði í Hemsedalen ef einhverjum er ekki sama. Þetta ku vera fínt skíðasvæði, staðsett í Norvegi og síðustu ár hefur verið púður uppað hnjám í lok nóv. Ég verð einmitt staddur þarna uppfrá dagana 24-27 nóv. ef ekkert hræðilegt gerist, eins og að ég fótbrjóti mig á hjólinu eða verði settur í fangelsi fyrir að fara of mikið í sporvagn eða eitthvað álíka heimskulegt.
Góðar stundir
1 manns fyllerí, síðasti drykkjubolti er bror din. |
föstudagur 23. sept. 2005
| 22:10 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Ég og Elín erum nýkomin heim af rjúkandi ferskri Charlie and the chocolate factory. Eins og annað sem Tim Burton gerir er myndin einstaklega, yndislega, súrrealísk, myrk, meinfyndin, litaglöð, Starring Jhonny Depp, frábær, ádeilin og í einu orði sagt frábær. Mæli eindregið með því að allir sjái myndina og tjah... lesi bókina? Hún er einmitt eftir mann að nafni Rhoald Dahl, en hann hefur einnig skrifað bækur eins og Jói og risaferskjan og Matilda, sem báðar hafa verið kvikmyndaðar. Svo sá ég líka mynd um daginn sem var með tæknibrellum og tölvuteiknuðum myndum úr Mspaint. Held hún hafi heitið Mönunarpúkinn eða eitthvað í þá áttina, Daredevil held ég á frummálinu. Einstaklega leiðinleg og þunn ræma, ekki einu sinni efni í ristavél!
Góðar stundir
3 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Margrét Maack. |
sunnudagur 25. sept. 2005
| 10:58 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Vísindamenn í vandræðum á Mars. Þeir eru að finna svo marga nýja staði að þeir eiga erfitt með að skýra þá alla. Örnenfnafræði á aldrei eftir að bíða þess bætur að hópur sérvitra einstaklinga með einstaklega súran einkahúmor séu að skýra alla staðina á Mars án þess að nokkur fái rönd við reist. Hér kemur smá dæmi:
...Earlier this year, a pockmarked meteorite in Opportunity's path was named SpongeBob SquarePants. Scientists had to name a spot on the rock and came up with SpongeBob's best friend, Patrick.
Það fer sko ekki á milli mála að það er gaman í vinnunni hjá sumum. Fleira skemmtilegt að finna á Yahoo.com
Góðar stundir
2 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Elín. |
|