
|
 |
mánudagur 8. ágúst 2005
| 08:33 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Já... hér verður Ragnarskviða kveðin. Þetta verður í síðasta skipti sem þið heyrið til mín í nokkra daga. Klukkan 16:10 að staðartíma, fljúgum ég og Elín frá Keflavík og snúum ekki aftur fyrr en um jólin, og fljúgum jafnharðan út aftur...
langar að óska Halldóri 'labbakút' Marteinssyni til hamingju með það að vera óléttur, hann á von á sér í Janúar.
Góðar stundir
ps: Til hamingju þú líka, Silja, megi barninu farnast vel.
3 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Garðar. |
laugardagur 13. ágúst 2005
| 10:59 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Velkomin á nýjan leik! Ég er kominn í samband við umheiminn aftur og þeir sem vilja ná í mig hafa úr mörgu að velja, msn, skype, gsm, bdsm og allt hvað eina! Ég veit ekki hvað og hvað, hér er allt að verða vitlaust enda ekki á hverjum degi sem jafn frábær náungi flytur til Svíþjóðar og ég er. Skólinn byrjar á þriðjudaginn næstkomandi og ég er byrjaður að gíra mig upp og pulsa mig niður. Undanfarnir dagar hafa einkennst af flutningi og reddingum og málefnum aldraðra (mig dreymdi fólkið á elliheimilinu þar sem ég vann í vetur). Ég er kominn með kennitölu í Svíþjóð og allt stefnir í að þeir veiti mér aðalstign einnig. En ég læt ykkur vita þegar það gerist og býð ykkur öllum í partý til mín á Chatau-ið mitt þegar þar að kemur (á kostnað hins mikla velferðarríkis að sjálfsögðu). Endilega látið einhverja fallega kveðju falla í tilefni af flutningum.
Góðar stundir
5 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Skúli. |
sunnudagur 14. ágúst 2005
| 15:26 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Mikið afskaplega er leiðinlegt að hjólið mitt skuli vera í gámi einhversstaðar í Varberg. Mig langar svo mikið að hjóla út um allt að ég er að verða brjálaður. Við Elín erum að leita okkur að Digital vél erum komin með augastað á canon ixus40. Einhver sem vill andmæla því?
Góðar stundir
ps: ef ég skrifa góðar stundir með sænsku lyklaborði kemur gäoåar stundir
1 manns fyllerí, síðasti drykkjubolti er Keli. |
föstudagur 19. ágúst 2005
laugardagur 20. ágúst 2005
| 10:45 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Ég verð að biðjast afsökunar á þessu ósmekklega kommenti, Margrét, það var að sjálfsögðu ekki gert til þess að særa neinn.
anyhow. Ég bý í borg sem er góð borg. En í þessari borg býr líka óprúttið fólk, þó það sé í miklum minnihluta. Það er altént barnsleg trú mín að það sé meira gott í fólki og meira af góðu fólki heldur en hitt. Hinsvegar rændi einhver óprúttin og óforskamaður dóni afturdekki(?!?) og hnakknum (w00t?!?!?!) af hjólinu mínu. Sennilega ætlaði hann að reyna að taka allt hjólið en var truflaður og flúði sem fætur tógu út í náttmyrkrið með ránsfenginn. Hvernig veit ég þetta? Jú, vegna þess að lásinn minn var næstum, bara næstum klipptur í sundur. Ég vona að sá hinn sami njóti góðs af mínu tjóni, sem er svona rétt rúmur 10 þús. kjeell. Héðan í frá verður hjólið mitt innandyra, þó ekki sé um dýrt hjól að ræða, þá má ég varla við svona aukaútgjöldum. Helvítis pakk
Góðar stundir
ps: ég á afmæli á morgun og tel þá 23 ár, fjúúúfff... þetta er svo fljótt að líða.
4 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Hallipalli. |
mánudagur 22. ágúst 2005
| 10:22 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Átti ammali i gaer, thad var gaman. Takk fyrir sms-in og e-mailin. Er i skolanum og nenni thvi ekki ad skrifa mikid, en Siggi í Kuai er nágranni minn. Vid drukkum saman bjór á laugardagskvöldid og thad var gaman. Siggi er finn gaur.
Gódar stundir
ps: thess ma geta ad vid keyptum okkur olympus mju mini S vél, faum hana i vikunni.
Enginn bjór |
þriðjudagur 23. ágúst 2005
| 17:45 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Já hann Eyðunn á Bergi er sko ekkert lamb að leika sér við þegar kemur að því að bæta troll. Meira um það hér
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1155082
Stundum finnst mér einns og ritstuldur á fréttum Baggalúts sé tíður, og þá sérstaklega þegar gúrkutíð er í fjölmiðlum. Alveeeeg óóótrúlegt!
Góðar stundir
3 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er sdtfgh. |
laugardagur 27. ágúst 2005
| 07:08 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Það er laugardagur í Svíþjóð, ég er ekki viss um restina af heiminum. Ég er að fara í mitt fyrsta próf núna á eftir (14:00 að staðartíma). Ég er enn ekki búinn að kaupa mér afturdekk á hjólið, né hnakk. En ég keypti mér nýjar bremsur og gírskipti að aftan... ekki alveg að forgangsraða rétt hérna...
Góðar stundir
Enginn bjór |
sunnudagur 28. ágúst 2005
| 13:15 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Fyrsta prófið gekk vonum framar en það veit ekki á gott. Alltaf þegar ég kem sáttur út úr prófum þá gekk mér illa. Þegar ég er ósáttur, gekk mér vel. Ég get bara vonað að lukkan sé að snúast mér í hag ellegar er mér hollast að skríða ofan í holu og halda mig þar. Mikið partý í gær, hljómsveitir sem spiluðu ska og reagge, hoppukastali, whiskey bar, trúbador, níu barir fjögur dansgólf, röð á karlaklósettið(?!?), sem er eitthvað sem ég hef sjaldan lent í. Það sem meira var, þá var engin röð á dömusalernið (w00t ?!?!?). drykkja og almenn ólæti. Þunnur í dag.
Góðar stundir
ps: allir sem eiga Lateralus með Tool hlaupa og setja hann í núna og hækka vel, einn af betri diskum seinni ára. Jafnast á við White album með Bítlunum? njaa.... og þó?
Enginn bjór |
þriðjudagur 30. ágúst 2005
| 15:53 | Sigurjón Ragnar Viðarsson |
Hafið þið farið í banka í Svíþjóð? Nei, ekki það? Jæja þá, ég skal segja ykkur hvernig það er.
Það er ekki hægt að borga með kreditkorti allstaðar.
Skítabankakerfi, þar sem ég get ekki borgað með korti get ég borgað með peningum, en. Ég get ekki tekið út nema um 2500 kr. sænskar á dag, sem þýðir að ég þarf 2-3 daga til þess að ná peningunum út til þess að geta borgað, sem er skítt, sérstaklega í ljósi þess að ég gæti þurft að kaupa mér eitthvað í millitíðinn, svona eins og mat eða eitthvað. Hvernig sem fer þá vona ég að mér verði ekki hent út fyrir að borga ekki leigu. Skítabankar...
Góðar stundir
2 manna fyllerí, síðasti drykkjubolti er Elín. |
|