Ég kann Bergi "Black SAAB-ath" góðar þakkir fyrir skutlið, þessa 90km leið útí sveit. Bílinn rauk í gang eins og hann hefði verið gangsettur í gær og loftið var enn í dekkjunum. Ég hentist til Gautaborgar á mettíma og ég held svei mér þá að það sé tímavél afturí bílnum en ekki volvo B20a hesthús.
Um helgina er stefnan tekin á Kjugekull í smálöndunum, þar sem grjótglíma verður stunduð af miklum móð. Það er tvennt af ýmsu!
Elín farin til Shanghai... Ég er að fara út að hjóla eftir vel heppnað fest í gær. 15 manns heiðruðu Elínu og mig með nærveru sinni og skemmtu sér sem mest þau máttu. Mikið gaman mikið fjör.
Frægur maður í Gautaborg gefa sig á tal við Ragnar og Elínu!
Maður sem spilaði með Taraf de Haidouks spilar reglulega og dansar í sömu götu, dag eftir dag, hér í Gautaborg. Það vildi svo til að við Elín vorum á ferð um götuna með myndavélar. Maðurinn varð alveg óður og setti upp sitt besta show síðan á Listahátíð í Reykjavík 2002 og ég pipraði á hann svona 20 myndum uppá gamla mátann (analog það er). Svo stoppaði hann og spjallaði við okkur á rúmensku, ekki það að við séum fullbefaren á rúmensku- en það vill svo til að rúmenska er latneskt mál (Elín hélt hann væri að tala spænsku). Við skildum eitthvað sem maðurinn sagði. Í hnotskurn var það þetta:
Harmonikan: "Ég er frá Rúmeníu, (bendir á mig)"
Ragnar: " Ég er frá Íslandi!"
Harmonikan:" ÍSLANDI!!! Ég spilaði með Taraf de Haidouks á Íslandi(að ég held)!?!"
Ragnar: "Váááá!"
Harmonikan: " Svo var ég laminn og missti tvær framtennur í neðri góm og þurfti að hætta"
Hér dregur hann upp artist-passa á frönsku frá einhverri tónlistarhátíð 2007, það er staðfest
að hann spilaði með Taraf de Haidouks þá að minnsta kosti.
Harmonikan: " Ég hef ferðast víða, til Boston, Toronto, hitti Jhonny Depp... en svo var ég laminn og þurfti að hætta"
Ragnar: "Má ég taka myndir?"
Harmonikan: " Jááááá!" (Stillir sér upp og brosir tannlaust)
Ragnar: "takk maður!"
Harmonikan: " Það gisti blaðamaður frá ríkisútvarpinu hjá fjölskyldunni minni í Rúmeníu einu sinni"
Ragnar: " Mannstu hvað hann heitir?"
Harmonikan: " Nei... Man ekki hvað hann heitir"
Ragnar: " Ok, gaman að spjalla við þig (tekur fleiri myndir)"
Harmonikan: " Sömuleiðis Island!"
Ragnar kveður
En hún er mjög sérstök að því leytinu til að ég er ekki í neinu prófi. Sem er gaman. Hinsvegar skila ég einu verkefni í lok vikunnar sem unnið er af hörðum höndum þessa dagana, í dag er ég hinsvegar í fríi og ætla fara og kaupa mér filmu i myndavélina mína, eða framkalla eina mynd.... eða kíkja á markaðinn hérna í næsta húsi.
Það er mikil pressa á að ég skrái mig á 'facebook', Elin neitar að vera umboðsmaðurinn minn, jafnvel ekki gegn greiðslu. Fólk sem aldrei hefur verið þekkt sem tæknitröll er nún á kafi í þessu, ég bíð samt spakur eftir því að karl-faðir minn sem ekki á gsm síma mæti á facebook.
Góðar stundir
ps: 'okkur' sem minnst var á hérna fyrir neðan, eru ég, andreas og christoffer sem eru að gera bs verkefni með mér.
Ég er ad gera bs og thad er gaman. Var rétt í thessu ad tryggja okkur einka-adgang ad tölvu. Nú geta Mastersnemarnir bara étid thad sem úti frýs og slegist um hinar... hahahha! Ekki skemmir fyrir ad vid fengum Mac tölvu.
rakst á þetta
"Frábært. Íslendingar verða 408.835 árið 2050.
Þá er bara spurning hvar þeir verða."
tekið af Baggalúti. Það er ekki laust við að baggalutur.is sé eitt skeleggasta málgagn þjóðarinnar. Betri fŕéttaflutningur þar, beittari leiðarar og betra skemmtiefni en ruv mbl visir og frettabladid til samans!
Framkallði mynd með Agli félaga, smellið á myndina til þess að sjá fleiri.
Já og... gítarinn úr fyrri færslu er svartur... oooog. ég keypti annan líka, Simon&Patrick. Fallegur sá, svokallaður parlor gítar- aðeins minni en venjulegir eiginlega 3/4 stærð en sjaalalaaa... þvílíkur hljómur!
Skradi mig i ljosmyndaklubb, ætla læra framkalla filmu! Bs.(sagdi einhver Bachelour of stupid?) verkefni a döfinni... mjög spennandi allt saman, fæ ad skra ahuga minn a verkefnum a morgun.
Fæ svo ad vita hvad eg fæ ad gera thann 14 dec. Margt spennandi i bodi og eg er mest spenntur fyrir thvi sem hefur med hljod ad gera. Get medal annars smidad hatalara, mælt lengd a hlutum (rörum held eg...) med hljodbylgjum eda verkefni i sambandi vid igrædd heyrnartæki... spennospenno!
Godar stundir
ps: keypti gitarinn a myndinni ef thid vorud ad pæla hvernig hann kemur færslunni vid...
"Þá kemur fram að einungis tveir gjaldmiðlar í heiminum hafi staðið sig ver en krónan á síðustu 12 mánuðum: manatinn í Túrkmenistan og dalurinn í Simbabve."
Er Geir ad spjalla vid Mugabe um hagstjorn? Thetta er nu kannski ekki allt honum ad kenna en hann verdur ohjakvaemilega blorabogull.... seisei ja. Eg tek einmitt saensk namslan thessa dagana. A erfitt med andadratt i hvert sinn sem eg se frettirnar ad heiman... held eg slökkvi bara a theim thar til um yfir likur.
Thad verdur ekki undirritad a sama hatt og venjan er.
Isk.- vs. Skr.- nadi nyjum haedum (laegdum?) i dag.... eg bendi folki fuslega a (og Lin...) ad leigan min hefur haekkad um sem jafngildir 19000 kronum sidan sidasta haust.
Eg tek ekki gledi mina a ny fyrr en Island er gengid i evropusambandid og vid (thid...) buin ad taka upp Evru. Eg er saenskur thar til astandid lagast. Eg skrifa til deamis ekki med ser-islenskum stöfum og eg er ad ihuga ad fara stinga inn malvillum og ödru godgaeti herna inn lika.
Gaman fugl er til daemis fyrsta setning vinar mins a islensku, svona til thess ad gefa einhvern forsmekk af thvi sem koma skal.
Þessvegna ber okkur að líta á tónlistarsöguna í stað þess að vilja alltaf eitthvað nýtt. Ég mæli eindregið með snillingnum Wolfgang Petry, sem er einmitt þýðverskur að uppruna.
Ef svona menn hefðu verið þekktir þegar ég var í framhaldsskóla þá hefði ég lært meiri þýsku. Rock und Roll!